Hérna höfum við tekið saman nokkur atriði sem oft er spurt um. Ef þú vilt bæta við, vinsamlega sendu okkur línu á h3@advania.is.
Bókhald
1. Færslubókin stemmir ekki, vantar færslur frá einum starfsmanni sem ég var að stofna.
...
- Þarna er sennilega "null" færsla í skráningu sem er ekki með á sér mánuð, þessari færslu verður að eyða út og því miður þá verður að fara í grunninn til þess. Til þess að koma í veg fyrir að þetta gerist aftur þarf að yfirfara fasta liði, einnig á þeim aðilum sem eru hættir. Null þýðir tómt, einingar ættu alltaf að vera 0 ef ekki á að tilgreina einingafjöldann.
...
Gjaldheimtugjöld
1. Hvernig er eldri gjöldum eytt út.
...
- Í Stofn / Gjaldheimtur þarf að skilgreina hvaða gjaldheimtur eiga að fara í skrána. Það er vegna þess að t.d. staðgreiðslan fer aldrei í bankaskrá. Greiðslumáti þarf að vera "Textaskrá SI080", athugið líka að bankaupplýsingarnar séu inni.
...
Greiðslur
1. Gjaldkeralistinn prentast ekki út
Sennilega vantar bankareikning á launagreiðanda í Stofn/Launagreiðandi/Bankareikningar.
Kjararannsókn
1. Skýrslan sem kjararannsókn fær er hærri en samtalsblaðið
...
- Einhver launaliður sem er "Laun" eða launatengd gjöld, ekki merktur í "Kjarar.upphæð"
- Vantar starfaflokkun á einhvern starfsmann.
- Vantar ISAT2008 kóða á einhverja deild.
Launamaður
1. Hvað er "Yfirdráttur"
- Yfirdráttur er settur á launamann ef heimilt er að bóka á hann hærri frádrátt en launin hans segja til um. Dæmi: Útborguð laun eru 120.000- skráð eru fyrirframgreidd laun upp á 500.000,- Þegar launin eru uppfærð myndast færsla á launalið 9800 í skráningu upp á 380.000,- og önnur færsla með sömu upphæð í Gjöld á þá gjaldheimtu sem hefur á sér launalið 9810. Í næstu útborgun sem þessi launamaður fær laun dregst sjálfkrafa af gjöldunum og viðkomandi fær ekkert útborgað fyrr en gjöldin eru að fullu greidd. Alltaf myndast ný færsla í gjöldum og ekki þarf því að muna eftir að draga frá launum.
...
- Já, við höfum 4 leiðir til þess:
- Í stofn/ Launagreiðandi er hægt að setja inn 300 stafa texta sem kemur á alla launaseðla, þessi texti er settur inn með því að smella á Crtl+M í einhverjum reit og textinn kemur á seðlana fyrir ofan rammann "Samtals frá áramótum". Þetta þarf að virkja í Kerfisumsjón/Stofn/Stillir/ HLaun - Launaseðill "Sýna lgr.minnistexta"þar er val um já eða nei.
- Í Stofn/Stillir HLaun - Launaseðill er "Skýringartexti" þetta er 90 stafa svæði sem kemur á launaseðilinn fyrir neðan samtals frá áramótum.
- Í Starfsmenn er reitur sem hefur fyrirsögnina "Ath. á launaseðli" Þessi reitur getur tekið við 45 stafa texta og kemur fyrir neðan starfsaldur.
- Í prentglugganum fyrir launaseðlana er reiturinn "Athugasemd" þar má skrifa inn 80 stafi, þessi texti kemur á alla launaseðla í þessari útprentun og birtist fyrir neðan Nafn og heimilisfang.
...
Launatöflur
1. Hvernig hækka ég launatöflu.
...
- Oftast er dagvinnuhlutfallið reiknað svona: 100/160 = 0,625, 100/173,33 =0,5769, eða hvað annað sem er vinnuskylda í 100% starfi í viðkomandi töflu. Ef eitthvað annað er í gildi er það tekið fram í kjarasamningi.
Leiðréttingar
1. Hvernig leiðrétti ég laun.
- Þú getur notað ferilinn undir Laun/Afturvirkar launaleiðréttingar til að aðstoða þig við leiðréttinguna. Afturvirkar launaleiðréttingar.
- Ef þú þarft að leiðrétta ofgreidda tíma úr annarri útborgun skráir þú leiðréttinguna á viðkomandi launalið í mínus og setur inn rétta dagsetningu á færsluna, mánuðurinn sem fer á færsluna þarf að vera til á útborguninni sem þú ert að skrá í.
- Ef þú þarft að leiðrétta launatengd gjöld s.s. stéttarfélag eða lífeyrissjóð, skráir þú á viðkomandi launalið í plús ef þú vilt hækka greiðsluna en skráir í mínus ef þú vilt lækka hana. Þú þarft að muna að setja inn skuldareiganda á færsluna. Það getur verið mjög þægilegt að færa dálkinn "Skuldareigandi" fram fyrir dálkinn "Einingar" á meðan verið er að leiðrétta.
...
Orlof
1. Starfsmaður er með mínus tíma á deildinni sinni en svo eru til plús færslur á öðrum deildum, af hverju er það?
...
- Sennilega vantar launaliðinn í réttindaáramótin. Ferð í Launatöflur – 0 tafla valin – Þar er valið Réttindaáramót. Þar setur þú inn rétta launaliði orlofs og réttan mánuð i Áramót.
- Launaliðurinn gæti verið með öðru númeri, þær stillingar sem skipta máli sérðu í myndinni hér að neðan
Skattur barna yngri en 16 ára
Allir launamenn sem fá laun í kerfinu þurfa að eiga skattkort til að persónuaflsáttur nýtist.
Ef launamaðurinn er barn sem er yngri en 16. ára (á árinu) er skattkort frá RSK ekki til staðar.
Í launkerfinu er skattkortið stofnað og það lítur svona út miðað við það að barnið hafi ekki haft tekjur annars staðar á árinu. Upphæðin 10.800,- er útreiknuð 6% af frítekjumarki barna uppgefnu á vef ríkisskattstjóra, athugið að þessi upphæð er breytileg frá ári til árs.
Skrá tíma og laun - Reikningur
1. Það reiknast ekki lífeyrissjóður á starfsmann sem ég var að stofna þó að ég hafi sett á hann lífeyrissjóð
...
Það vantar eitthvað gildi inn á starfsmanninn sem þú ert að reyna að skrá laun á , oftast er það deildin eða verkþátturinn sem hefur gleymst að skrá.
...
Skilagreinar
1. Þegar ég opna Úttak/Skilagreinar er glugginn tómur
...
- Þarna er væntanlega verið að reyna að senda almennan sjóð sem séreign eða séreignarsjóð sem almennan. Dæmi: Séreignardeild Frjálsa lífeyrissjóðsins er nr. 135 og almenna deildin er númer 137,(einkennisnúmer í H3) þegar skilagreinin kemur rétt þá verður númerið í XML skeytinu X135 og L137, hins vegar tekst ekki að senda ef númerið verður L135 eða X137
Endurhæfingarsjóður
Endurhæfingarsjóður er settur inn í Almenna lífeyrissjóði. Launaliðurinn getur verið hvaða númer sem er en hefur alltaf "Skilagreinategundina" R.Endurhæfingarsjóður.
...
Gjaldið reiknast alltaf hlutfallslega á milli sjóða ef starfsmaður er í fleiri en einum almennum lífeyrissjóði, þannig getur hlutfall endurhæfingarsjóðs ekki reiknast af sama stofni ef föst tala er á lífeyrissjóði, endurhæfingarsjóður er alltaf hlutfall þeirra launaliða sem hafa á sér reiknistofninn SLIF.
...
Starfsmannafélag
1. Hvernig set ég mótframlag á starfsmannafélagið.
...
Númerin geta verið önnur.
Stofntöflur
1. Ég finn ekki lífeyrissjóðinn minn í Stofn / Veflyklar.
Í þessum lista eru einungis þeir sjóðir sem hægt er að senda á XML formi. Ef þinn sjóður er ekki í listanum eða tengdur öðrum sjóði í neðri part skjámyndarinnar "Skráning" þarftu að senda á annan hátt. Meira um veflykla
2. Hvað þýðir "Fyrra tímabil í útborgun" í lífeyrissjóðum og stéttarfélögum.
Það þýðir að ef 2 mánuðir eru á útborgun fara gjöldin á fyrri mánuðinn í "Skilatímabil" óháð því hver dagsetningin og mánuðurinn á færslunni er. Þetta er fyrst og fremst notað fyrir lífeyrissjóði starfsmanna ríkis og sveitarfélaga.
...
Villur í kerfinu
1. Ég get ekki opnað launamann, fæ villuna "Gat ekki notað síu......"
...
Útborgunin er "Án fastra liða".
5. Allt frosið - ekkert hægt að gera
- Villugluggar detta stundum á bakvið, til að kalla þá fram á að ýta á Ctrl+Shift+Tab
Villur í uppfærslum
1. Ekki hægt að importa töflu.....Villuboð(Cannot open file\....
...
- Hafðu samband við þjónustudeildina, við þurfum að tengjast til að skoða hvað veldur.
Annað - óflokkað
1. Allt frosið - ekkert hægt að gera
...