Þegar búið er að lesa inn allar innlestrarkrár og skrá inn á launamenn allt sem á að vera í fyrstu útborguninni þarf að yfirfara og stemma alla launaliðina af við útborgun í gamla kerfinu.
Áður en yfirferð hefst er gott að byrja á því að fara í Laun - Endurreikna þannig að öruggt sé að það komi nýr útreikningur á allar nýjar skráningar og breytingar.
Nauðsynlegt er að taka út fyrirtækjalista fyrir mánuðinn sem er heildarlisti fyrir allar launafærslur í mánuðinum, sundurliðaður niður á launaliði. Bera þarf svo þennan lista saman við sambærilegan lista í gamla launakerfinu. Farið í Laun - Afstemmingar - Skýrslur - Fyrirtækjalisti, útborgunin sem verið er að vinna í á að koma sjálfgefin í valið og svo er smellt á Skoða á skjá. Hér er þá hægt að bera launaliðina saman við útborgun í gamla kerfinu. Hægt er að smella á launaliðina til að sjá sundurliðun á þeim og einnig er hægt að taka þessa skýrslu út í excel eða sem pdf skjal. Hér eiga allar tölur að stemma en þó getur verið um einhvern krónumun að ræða. Til að finna mismuninn er hægt að taka út launaseðla og bera saman við launaseðla úr gamla kerfinu. Þó ekki sé um mun að ræða er góð regla að yfirfara launaseðlana samt sem áður.
...
Að auki eru í kerfinu ýmsir listar og skýrslur sem henta vel til afstemminga, sjá almennar upplýsingar hér
Ef að gerðar hafa verið breytingar á skráningu launa í tengslum við þessa yfirferð er nauðsynlegt að fara aftur í Laun - Endurreikna til að allir útreikningar séu réttir. Skoða þarf svo hvort það hefur haft einhver áhrif á afstemmingarnar.
Þegar búið er að bera þetta saman og allir launaliðir stemma þá er hægt að fara í að uppfæra launin.
...