Versions Compared

Key

  • This line was added.
  • This line was removed.
  • Formatting was changed.

Farið er í Úttak - Skilagreinar. Til að geta sent skilagreinar þarf að vera búið að loka mánuðinum sem skilagreinar eru sendar fyrir.

Ef algengt er að gerðar eru leiðréttingaútborganir sem eiga að fara inn á mánuðinn sem verið er að vinna með getur verið gott að bíða með að senda skilagreinar þangað til búið er að uppfæra leiðréttingarútborgunina. Þá bætist upphæðin bara við það sem greiða þarf á viðkomandi skilatímabili hjá hverjum sjóði fyrir sig. Ef leiðréttingaútborgun er gerð eftir að búið er að senda skilagreinar þá þarf að senda aftur skilagreinar fyrir það sem bættist við í þeirri útborgun.

Ekki þarf að senda allar skilagreinar í einu. Það er hægt að velja sérstaklega þær skilagreinar sem á að senda og þá hægt að byrja á þeim sem hafa stuttan greiðslufrest og geyma hinar.

Sjá nánari upplýsingar um skilagreinar hér

Skilagreinar