Info |
---|
Athugið að uppfærslan gæti tekið lengri tíma en áður og mælum við með því að uppfærslan sé tekin inn í lok dags. Ef upp koma vandræði hafið samband við ráðgjafa í h3@advania.is |
Ferli | Lýsing á virkni | Kerfishluti | Stillingar / leiðbeiningar | |||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Laun - Starfsmaður | Tekin hefur verið ákvörðun um að bakka með breytingar sem gerðar voru fyrr í sumar varðandi það að aukalína varð til í tímavídd þegar starfsmenn voru nýráðnir eða endurráðnir. Sjá útgáfulýsingu vegna júní-útgáfu Þegar starfsmaður er endurráðin og hefur áður verið gerður óvirkur, verður hann nú sjálfkrafa virkur í núgildandi færslu þegar ný færsla hefur verið stofnuð þar sem hann er settur í starf. Athugið að þeir starfsmenn sem hafa verið ráðnir eða endurráðnir og eru með aukalínu í tímavídd munu áfram vera með aukalínu eftir uppfærslu. Ef upp koma vandkvæði þá vinsamlegast hafið samband við ráðgjafa í h3@advania.is |
| ||||||||
Jafnlaunaskráning | ||||||||||
Jafnlaunagreining | Aðlaganir hafa verið gerðar á jafnlaunagreiningu á móti tímavídd. Bætt hefur verið við dálkum í skýrslu og notendum er gefinn kostur á að breyta heitum á dálkum á vörpunarliðum Hægt er að gefa vörpunarliðum nýtt heiti undir Jafnlaunagreining - Breyta heitum á vörpun launaliða Eftirfarandi dálkum hefur bætt við skýrsluna: Tímabil – sýna fyrir hvaða tímabil gögn eru | |||||||||
Markaðslaun PwC | Ýmsar betrumbætur hafa verið gerðar á Markaðslaunum PwC, til að mynda hefur PwC flokkun verið bætt við ÍSTARF auk þess sem dálkum hefur verið bætt við og sumir endurnefndir samkvæmt beiðni PwC. Nánari upplýsingar varðandi Markaðslaun PwC má nálgast hér auk þess sem sérfræðingar PwC geta gefið nánar upplýsingar. | |||||||||
Kjarakönnun Intellecta | Gerðar hafa verið aðlaganir vegna kjarakönnunar Intellecta. Tveimur flokkum hefur verið bætt við í "Menntun - Fög" og tveir aðrir hafa verið endurnefndir: Bætt við: 199 Önnur háskólamenntun 299 Önnur iðnmenntun Endurnefndir: 114 Listgreinar var Önnur háskólamenntun 212 Matreiðsla var Önnur iðnmenntun Eftirfarandi dálkum hefur verið bætt við "Starfssvið" auk þess sem textabreytingar hafa verið gerðar: 11.1.1 Viðskiptamannaþjónusta - Tryggingaráðgjöf Customer service - Insurance | |||||||||
Jafnlaunateningur | Gerðar hafa verið ráðstafanir vegna tímavíddar í jafnlaunaskráningu starfsmanns | |||||||||
Laun | ||||||||||
Laun - Starfsmaður | Aðlaganir hafa verið gerðar á aðgerðinni Afrita upplýsingar á milli starfsmanna vegna tímavíddar | |||||||||
Úttak - Bókhaldsskrá | Nú er hægt að taka bóhaldslista NAV/BC út á skjá | |||||||||
Laun - Staðfesta fasta liði | Vinnslan Staðfesta fasta liði staðfestir nú liði starfsmanna sem eiga að koma til starfa síðar í útborgunarmánuði Dæmi: verið er að stafesta fasta liði 15. mánaðar en í hópi virkra starfsmanna, sem eru með stöðuna Í starfi, á tiltekinn starfsmaður að hefja störf síðar - eða sem dæmi 20. þess sama mánaðar. Hann er er nú tekinn með í staðfestingunni þrátt fyrir að sá dagur sem hann kemur til starfa á, sé ekki liðinn. Þegar verið er að endurráða starfsmenn: Bætt hefur verið við nýjum möguleika í Staðfesta fasta liði: "Taka með framtíðarstarfsmenn skv. tímavídd" sem er þá sett á Nei eða Já. Athugið þetta á við þegar sían Í starfi / Í leyfi er notuð | |||||||||
Laun (tímavídd) | Villuboð vegna næturkeyrslu tímavíddar hafa verið gerð skýrari og tilgreina nú í hvaða fyrirtæki (ef um fleiri en eitt er að ræða) villan hefur komið upp. | |||||||||
Dagpeningar - Gengi | Nú uppfærist gengi í takt við miðgengi Seðlabanka Íslands í samræmi við breytingar Seðlabankans | |||||||||
Nú er hægt að taka út starfslýsingar starfsmanna sem .pdf skjal | ||||||||||
Signet - rafrænar undirskriftir | Ef Signet er í gangi í fleiri en einu fyrirtæki þarf að setja aftur að stað sjálfvirku keyrsluna "Setja upp vinnslu" í hverju og einu fyrirtæki. Nánari upplýsingar veita ráðgjafar í h3@advania.is | |||||||||
50Skills | Þegar starfsmaður er stofnaður frá 50skills í H3 er valin tegund launaseðils í samræmi við grunnstillingu í Stillir | |||||||||
Samþættingar | Fyrir þau fyrirtæki sem nota samþættingar og tímavídd: Nú er komin uppfletting í tímavídd í samþættingar-viewi fyrir nýja og endurráðna starsfmenn |