Talning á veikindarétti er gerð frá þeim tímapunkti sem tekin er út staða veikindaréttar á starfsmanni - þ.e. frá deginum í dag og 12 mánuði aftur í tímann.
Veikindaréttur er talinn samfellt aftur jafnvel þótt starfsmaður láti af störfum og komi aftur til starfa.
Veikindaréttur starfsmanns tekur mið af því starfshlutfalli sem starfsmaður er í á þeim tímapunkti sem veikindaréttur er talinn - fjöldi veikindastunda sem starfsmaður hefur skráða skalast ekki til hafi starfsmaður minnkað eða aukið starfshlutfall sitt frá þeim tíma sem veikindaskráning átti sér stað.
Veikindaréttur er ekki talinn ef: Ráðningarform starfsmanns er Ekki byrjaður, Verktaki eða Launalaust leyfi
Veikindaréttur barna er óháður veikindaréttarsamningi og starfshlutfalli. Hann reiknast skv.: fyrstu sex mánuði í starfi: tveir dagar fyrir hvern unninn mánuð, eftir 6 mánaða starfi: 12 dagar á hverju 12 mánaða tímabili - hámarks réttur vegna veikinda barna er 12 dagar. Veikindaréttur vegna barna reiknast alltaf í heilum dögum.