Stofna útborgun án fastra liða, án fastra greiðslna, án skattkorts og án gjalda. Ef verið er að núllstilla orlofsuppbót er eðlilegt að útborgun sé stofnuð á apríl en ef verið er að núllstilla desemberuppbót er eðlilegt að stofna útborgun á desember eftir að búið er að uppfæra áramótaútborgun.
Í þessari vinnslu er hægt að núllstilla allar söfnunarfærslur. Hægt er að velja um að núllstilla allt og þá núllstillist bæði réttur og ávinnsla. Einnig er hægt að velja um að núllstilla bara rétt eða bara ávinnsluna. Algengast er að verið sé eingöngu að núllstilla réttinn og þá er hægt að velja það sérstaklega sjá leiðbeiningar hér fyrir neðan.
Fara í LAUN-VINNSLUR-NÚLLSTILLING Á RÉTTINDUM:
Aðgerðargluggi opnast hægra megin á skjánum:
...
Þegar búið er að velja inn í reitina er smellt á Núllstilla.
Til að skoða hvort allar færslur skili sér ekki og öll réttindi séu núllstillt er gott að skoða fyrirspurnina “Réttindi starfsmanns” áður en útborgunin er uppfærð.
Farið er í Úttak - Fyrirspurnir
...
05. Réttindi starfsmanns
...
Velja í reitinn “Staða útborgana” Uppf. og óuppf. og þá kemur upp staða miðað við útborgunina sem er í vinnslu.
...
Ef að reiturinn Réttur er kominn á núll hjá öllum þá er núllstillingin klár og hægt að uppfæra útborgun.