Versions Compared
Key
- This line was added.
- This line was removed.
- Formatting was changed.
Í H3 eru nokkrir staðlaðir teningar sem gott er að nota til að fylgjast með framvindu launaútborgunar, stöðu veikinda, réttindaskuldbindingu og fleiru.
Fjöldi launamanna / Fjöldi starfmanna
Fjöldi launamanna – þarna er talning á launamönnum í mánuði og í útborgun
Fjöldi starfsmanna- talning á störfum, einn launamaður getur verið í mörgum störfum hjá fyrirtæki.
Ef launmaður/starfsmaður á einhverja færslu kemur hann inn, óháð því hvers konar færsla það er þannig að ef þið eruð að leiðrétta t.d. orlof, núllstilla uppbætur eða eitthvað slíkt geta komið inn fjöldi hættra starfsmanna og best því að sleppa slíkum útborgunum úr menginu.
Heildarfærslur
Dregur öll gögn úr "Skrá tíma og laun" upp í teninginn miðað við frá og til skilyrðin sem valin eru. Launakostnaður, Frádráttur og Söfnun eru tekin upp í teninginn. Notandinn hefur möguleika á að skoða allar færslur sem settar voru inn í skráningu og reiknaðar færslur. Þetta er ein öflugasta fyrirspurnin í kerfinu, með henni er hægt að tryggja að allar tegundir af upplýsingagjöf verði mun auðveldari en áður. Bæði launafulltrúar, stjórnendur og eftirlitsaðilar eiga mjög auðvelt með að skoða gögnin og tryggja að ekkert sleppi í gegnum afstemmingar á útborgunum áður en uppfært er.
Heildarlaunakostnaður
Eini munurinn á Heildarlaunakostnaði og Heildarfærslum er að eingöngu kostnaðarfærslur koma upp í þessari fyrirspurn. Búið er að hreinsa út Frádráttar- og Söfnunarliði.
Réttindastaða
Þegar starfsmenn safna réttindum s.s. Orlofi, Vetrarorlofi, Desemberuppbót, Orlofsuppbót o.fl. er eftir hvern mánuð fundið út hver skuldbindingin á bak við þessi réttindi er með því að keyra sjálfvirka vinnslu sem reiknar réttindin yfir í krónur með launatengdum gjöldum. Í Réttindastaða er hægt að skoða allar þessar krónur frá hinum ýmsu sjónarhornum. Þegar búið er að bóka réttindin í bókhald vakna oft upp spurningar hjá stjórnendum hvernig þessar tölur voru fundnar út og ýmsir rengja upplýsingarnar í bókhaldinu. Með fyrirspurninni er hægt að skoða þessi mál nákvæmlega og sanna útreikning á öllum réttindum.
Réttindi starfsmanns
Sýnir safnfærslulaunaliði sem þarf að gera upp við starfslok, sundurliðar Réttur/Áunnið
Stöðugildi stéttarfélaga
Einfaldur teningur sem sýnir stöðugildi niður á stéttarfélög og sundurgreinir fjölda kvenna og karla
Þegar búið er opna tening kemur sambærileg skámynd upp á skjáinn og sést hér til hliðar.
Í hverju atriði má sjá tákn sem gefur til kynna að hægt er að fara í undirvalmöguleika. Þegar ýtt er á táknið kemur upp mynd sem sést hér að neðan.
Í þessari mynd er hægt að takmarka gögnin ef við viljum bara sjá t.d. deild númer 10 smellir þú í felligluggan við deildina og þá getur þú tekið út hökin í öllum hinum og eru þá bara upplýsingar um deild 10 sýnileg. Hægt er að raða gögnum upp með því að hægrismella í fyrirsögnina á reiknuðum dálkum.
Inni í uppsetningu tenings getið þið breytt stillingum og séð t.d mismunandi sýn á upphæðum og einingum.
Hægt er að flokka saman t.d. launaliði saman í vissa flokka með því að velja Breyta sérsniðnum víddum (Flokka).
Smellt er á möppuna og skrifað lýsandi heiti, svo er valið viðeigandi Flokk sem á að vinna með sbr launaliðir, smellt svo á launaliðin og smellt á örina yfir og þá dettur það undir viðeigandi möppu.
Einnig er hægt að opna greiningarteninginn í vafra með því að smella Opna í vafra.
Image Added Image Added