Í lista er yfirlit yfir reiknihópa kerfisins. Lista yfir alla reiknihópa er að finna undir Stofn - Reiknihópar.
Hægt er að sjá lista yfir reiknihópa á starfsmönnum undir Stofn - Starfsmenn - Reiknihópar starfsmanna.
Hér er allt reikniverkið og það þarf að hafa mjög góða þekkingu á launavinnslu og launaumhverfi fyrirtækisins til að gera breytingar, endilega farið varlega.
Þú getur bætt við reiknihópum ef greiða á álag af einhverju tagi sem reiknast sem hlutfall eða föst krónutala ofan á launalið eða reiknistofna launaliðs.
Dæmin hér að neðan eru til að gefa þér hugmynd um hvað hægt er að gera, endilega sendu fyrirspurn á h3@advania.is ef þú þarf að láta leysa einhver mál fyrir þig þessu tengt.