Ferli: Laun – Starfsmenn – Aðgerðir → Breyta opinni tímavídd
Notendum gefst kostur á að Breyta opinni tímavídd hjá mörgum starfsmönnum í einu í gegnum Aðgerðir undir Starfsmenn
Tveir leiðir eru til í að velja starfsmenn sem eiga að breyta.
Með því að vera á starfsmannalistanum – velja einn starfsmann – ýta svo á Ctrl + Shift takkann á sama tíma ásamt ör upp/niður.
Með því að fara í vinnsluna Breyta opinni tímavídd – ýta á stækkunarglerið – haka við þá starfsmenn sem er verið að fara breyta – ýta á velja starfsmenn
Breytingar sem eiga að verða eru svo skráðar í viðeigandi dálka.
Dæmi: 5 starfsmenn eru að fara skipta um deild og í leiðinni fara þau öll í sömu launatöflu og sama þrep.
Ný deild sótt ásamt launatöflu og þrep skráð – Athugasemd verður að vera skráð - og svo smellt á Halda áfram.
Á næstu síðu er hægt að sjá yfirlit yfir þá starfsmenn sem er verið að breyta og þær breytingar sem munu eiga sér stað.
Ýtt er á hvern starfsmann fyrir sig til að sjá núverandi gildi hjá þeim og hvert nýja gildið verður. Ef þið eruð sátt við breytingarnar þá er ýtt á Staðfesta skráningu.
Hægt er að haka við Taka út breytingaskýrslu áður en ýtt er á Staðfesta skráningu til að eiga skýrslu um breytingarnar.
Ef þið viljið gera einhverjar breytingar er ýtt á Aftur í lista.