...
Warning |
---|
title | Eyðing er ekki afturkræf! |
---|
|
Athugaðu að þegar gögnum er eytt hér er ekki hægt að endurheimta þau á neinn hátt. Að lokinni eyðingu umsækjenda verður ekki hægt að finna nein gögn um viðkomandi einstaklinga umsækjendur í kerfinu, nema ástæðu eyðingar ar með talið í söguskráningu. Hér á meðal eru viðhengi, tölvupóstsamskipti sem geymd eru í H3, og allar umsóknir umsækjenda í kerfinu. Eina undantekningin er ástæða eyðingar, sem skráð hefur verið hverju sinni, tengt ásamt kennitölu umsækjandans, og það má aðeins skoða með því að fletta upp í gagnagrunninum sjálfum. |
...
Í H3 ráðningum eru nokkrar leiðir til að eyða umsóknum og umsækjendum:
...
...
Info |
---|
title | Færðu ekki upp möguleika til að eyða? |
---|
|
Ef þú sérð ekki þessa valkosti þarf að bæta við eftirfarandi aðgangseiningum á notandann þinn: - deleteapp - Eyða umsókn
- 1652 - Eyða umsækjanda
- 1653 - Eyða gömlum umsækjendum
- 1654 - Eyða gömlum umsækjendum
|
Eyða gömlum umsækjendum - í eitt skipti eða reglulega
Hægt er að eyða gömlum umsækjendum (grunnskráningu, umsóknum, viðhengjum og öllum öðrum tengdum gögnum) á sjálfvirkan hátt, annars vegar í eitt skipti og hins vegar með sjálfvirkri reglulegri keyrslu, sem keyrir einu sinni á sólarhring. Einnig má hér slökkva á keyrslu sem þegar hefur verið sett af stað.
- Þegar þú velur valmöguleikann sem þér hentar birtast þér stillingamöguleikar, eins og sjá má hér.
- Við að kveikja á reglulegu keyrslunni getur þú valið að láta kerfið senda umsækjendum tölvupóst með upplýsingum um hvernig þeir geta komið í veg fyrir eyðingu gagna sinna ef þeir vilja vera áfram á skrá, en þeir fá þá nokkurra daga frest til að gera það. Tölvupóstsniðmátinu, sem heitir Eyða umsækjanda - viðvörun, getur þú breytt á Ráðningar > Tölvupóstsamskipti > TölvupóstsniðmátImage Modified
| Image Modified |
Eyða gömlum umsóknum - í eitt skipti eða reglulega
- Hægt er að eyða gömlum umsóknum (þ.e. almennum umsóknum og umsóknum sem borist hafa um ákveðin störf) á sjálfvirkan hátt, annars vegar í eitt skipti og hins vegar með sjálfvirkri reglulegri keyrslu.
- Nauðsynlegt er að velja aldur umsókna sem á að eyða.
- Þú getur valið að ekki eigi að eyða út umsóknum um ákveðnar ráðningabeiðnir, t.d. almennar umsóknir. Hér má velja eina eða fleiri ráðningabeiðnir.
- Athugaðu að umsækjendum er ekki eytt þegar þessi eyðing er keyrð, heldur aðeins umsóknum og gögnum tengdum þeim.
| Image Modified |
Eyða stökum umsækjanda
- Opnaðu Ráðningar > Umsækjendur á skrá, veldu umsækjanda sem þú vilt eyða út og smelltu á aðgerðina til að eyða út stökum umsækjanda og öllum hans gögnum (þ.e. grunnskráningu, umsóknum, tölvupóstsamskiptum, viðhengjum o.þ.h.).
Image Modified
- Áður en þú smellir á Áfram til að keyra aðgerðina mælum við með að þú rýnir vel og staðfestir að þarna sé um að ræða réttan umsækjanda og að eyða megi öllum umsóknum hans.
- Nauðsynlegt er að skrá ástæðu fyrir eyðingunni. Sú skýring verður geymd áfram í gagnagrunni ásamt kennitölu umsækjandans, en ekkert annað.
| Image Modified |
Eyða stakri umsókn
- Opnaðu Ráðningar > Umsóknir, veldu umsókn sem þú vilt eyða út og smelltu á aðgerðina til að eyða stakri umsókn og viðhengjum sem fylgja henni, án þess að eyða grunnskráningu umsækjandans.Image Modified
- Nauðsynlegt er að skrá ástæðu fyrir eyðingunni. Sú skýring verður geymd áfram í gagnagrunni ásamt kennitölu umsækjandans, en ekkert annað um þessa umsókn.
| Image Modified |