Notendum gefst kostur á að vinna með einstaklingsbundin laun í H3.
Einstaklingsbundin laun eru skráð í tímavídd í dálkinn Laun yfirskrifuð og er þá starfsmaður orðinn óháður að vera skráður á launatöflu, launaflokk og þrep.
Ef vinna á með Hlutföll og/eða Krónur í launatöflu þegar verið er að vinna með yfirskrifaða launaupphæð þá þarf að hafa eftirfarandi í huga:
Virknin er þannig að ef það var áður skráð launatafla á starfsmanni þá reiknar kerfið það skráða hlutfall af upphæðinni.
Ef ekki áður skráð launatafla þá vinnur kerfið útfrá 0 Sameiginlega krónu – og réttindatöflunni.
Því þarf að gæta þess að sá launaliður sé skráður í 0 Sameiginlega krónu – og réttindatöflunni.
Ef það er t.d. umsamin upphæð á yfirvinnu þá er hægt að skrá þann launalið í Fastir og hlutfallaðir liðir - Einingarverð á tíma.
Ef það er yfirskrift í föstum og hlutfölluðum liðum þá yfirskrifar það skráðar forsendur á starfsmanni.
Upplýsingar um Laun yfirskrifuð má finna í starfsmannamynd undir Grunnlaun og í Starfsmannalista.
Dæmi 1:
Starfsmaður var skráður á launatöflu, en frá og með 1.3.2023 á viðkomandi starfsmaður að fara á einstaklingsbundin laun, þá er ný tímavídd stofnuð settar upplýsingar um laun í dálkinn Laun yfirskrifuð, þá verður áður skrifuð launatafla, flokkur þrep óvirkt.
Dæmi 2:
Nýr starfsmaður fer á einstaklingsbundin laun frá og með 1.11.2021, einnig fer starfsmaður tímabundið á umsamdan taxta á yfirvinnu sem á einnig að fara á aðra deild frá og með 15.11.2021.
Skráning í Fastir liðir tímavídd:
Til upplýsinga þá er verið að vinna að eftirfarandi:
Kjarakönnunum: Jafnlaunagreining, PwC, Intellecta, SÍS.
Vinnslan – Reikna uppbætur
Áætlanir
Teningar - gera svæði sýnilegt
Info |
---|
Það þarf að gæta þessa að hlutföll fyrir launaliði t.d. 105 sé til staðar í 0 töflunni upp á réttindaútreikning og niðurfærslureikning oþh. skráningar þegar um nýja starfsmenn er að ræða og eiga ekki sögu um áður skráða launatöflu. |
Hækka einstaklingsbundin laun Grunnlaun - Yfirvinnutaxti yfirskrifaður (einstaklingsbundin laun)