Til að stofna stéttarfélag eða breyta upplýsingum er farið í Stofn / Stéttarfélög. Það er á ábyrgð notenda að gæta þess að alltaf séu réttar upplýsingar skráðar á hverjum tíma.
Ef stéttarfélag er gert óvirkt þá athugar kerfið hvort það er skráð á einhvern starfsmann í starfi. Ef svo er kemur viðvörun þar sem engin skráning má vera á óvirkt stéttarfélag. Óvirkt stéttarfélag sést eingöngu í stofnflipa og kemur ekki fram í uppflettigluggum. Þessi virkur/óvirkur virkni er notuð þegar stéttarfélög eru sameinuð og við þurfum að tryggja að viðkomandi starfsmenn séu komnir með rétta tengingu á sameinaða sjóðinn.
Greiðsla:
Skilgreining á greiðslumáta, greiðsludagsetning og bankaupplýsingar viðtakanda.
...
„Til greiðslu" þar er valinn greiðsludagsetning. Öll stéttarfélög sem hafa sama greiðsludag og greiðslumáta „Textaskrá SI080" mynda eina greiðsluskrá.
Reikningur:
Skilatímabil:
...
Fyrra tímabil í útborgun: Allar lífeyrissjóðsfærslur fara á fyrri mánuð á útborgun, ef mánuðirnir eru tveir.
Það er skilgreint á hvert félag fyrir sig við hvaða aldur á að byrja að reikna iðgjaldið og hvenær því verður hætt. Það er frádagur á launafærslum sem virkjar eða óvirkjar reikninginn.
Þegar félag er stofnað kemur sjálfgefið í það „Lágmarksaldur“ 0 og „Hámarksaldur“ 100. Þessu er hægt að breyta að vild, en má ekki vera tómt.
Skil:
Einkennisnúmer er það númer sem skrifast sem einkenni félags í rafrænni skrá. Textinn við einkennisnúmerið er lesinn upp úr "Jóakim"sem er útbreiddasta lífeyris- og félagakerfi á Íslandi.
...
Neðst í myndinni eru skráðar upplýsingar um útreikning á félagsgjaldi og öðrum gjöldum launþega og mótframlagi launagreiðanda eftir því sem við á. Hægt er að vísa skilagreinum og greiðslum hvers gjalds á mismunandi sjóði ef þörf krefur.
Upplýsingar um reglu reglur má sjá hér.