...
Einkennisnúmer er það númer sem skrifast sem einkenni félags í rafrænni skrá. Textinn við einkennisnúmerið er lesinn upp úr "Jóakim"sem er útbreiddasta lífeyris- og félagakerfi á Íslandi.
Í "Skilaaðgerð" er valið um það hvernig senda á skilagreinar, sjá möguleika í uppfletti. Ef valið er Rafrænt (XML) þarf að setja inn notandanafn og lykilorð í töfluna Stofn/Veflyklar.
Ef það er hak í "Virk vefþjónusta" þá getur sjóðurinn tekið við skilagreinum á XML formi, það væri þá valið í uppfletti.
Ef skilaaðgerð er valin "Tölvupóstur" þarf að setja inn netfang móttakanda.Prentform hefur áhrif á útlit skilagreinar á pappír.
Neðst í myndinni eru skráðar upplýsingar um útreikning á félagsgjaldi og öðrum gjöldum launþega og mótframlagi launagreiðanda eftir því sem við á. Hægt er að vísa skilagreinum og greiðslum hvers gjalds á mismunandi sjóði ef þörf krefur.
...