Ef við þurfum að reikna upp eitthvað sem einingadálkar hafa áhrif á t.d. orlofs- og desemberuppbót er það gert í Skráning launaáætlana / Aðgerðir /Áætlanir / "Reikna upp eingreiðslur", þetta er gert allra síðast þegar búið er að ganga frá dálkunum fyrir mánaðarlaunin og tímana fyrir alla starfsmenn alla mánuði ársins.
Forsenda þess að útreikningur verði réttur er auk fyrrgreindra eininga, "Vinnuskylda 100%" sem þarf að vera fyllt út í skjámyndinni "Skráning launaáætlana".Úr skjámyndinni "Skráning launaáætlana" er farið í Aðgerðir sem er efst í hægra horni skjámyndarinnar, þar er valið "Reikna upp eingreiðslur"