...
Oft er hafður einn bunki fyrir hvern mánuð eða hvert ár, en stundum þarf að skipta honum upp, til dæmis þegar hluti starfsmanna fær dagpeningana greidda áður en ferðin er farin en aðrir fá greitt í næstu útborgun.
...
Þegar búið er að skrá dagpeningafærslurnar er farið í Aðgerðir (niðri vinstrameginhægra megin) og valið Reikna dagpeninga. Þá kemur upp ferill með sjálfgefnum gildum sem sett hafa verið í stilli, þessum gildum er hægt að breyta í hverri færslu fyrir sig. Hægt er að reikna færslurnar og sjá útreikning áður enn þær eru greiddar. Ath. passa þarf að gengi sé uppfært: Skráning - Innlestur - Gengi - Innlestur á gengi.
...
Til að setja færslur í útborgun er farið í Aðgerðir / -> Tengja útborgun
"Greiðsludagur frá" og "Greiðsludagur til" er dagurinn í dag, þ,e, dagsetning þegar þú ert að framkvæma þessa aðgerðaðgerðin er framkvæmd.
Setja inn rétta útborgun, hún þarf að vera opin.
Launaliðurinn sem er valinn í "Launaliður" er dagpeningalaunaliður, oft 500 en gæti verið annar í þínu fyrirtæki. Launaliðir sem eru notaðir fyrir dagpeninga eru með launategundina 75 - Dagpeningar.
Ef á að reikna skatt á færslurnar er valið Já í "Nota skattareglur dagpeninga". Þá reiknar kerfið skatt ef mismunur er á upphæð í Dagpeningauppsetningu og Skattareglu dagpeninga sem er á viðkomandi Dagpeningauppsetningu.
Ef búið er að ganga frá greiðslu til starfsmanns er valið að setja inn fyrirframgreiðslur. Ef valið er Nei þá er verið að greiða dagpeningafærslurnar út í launakerfinu (viðkomandi útborgun). Hægt er að nota báðar aðferðir í sömu útborgun en þá verður að flytja færlsurnar færslurnar í tvennu lagi og hafa þær í 2 bunkum. Þetta er hægt með því að taka hakið úr Greiðist nú og flytja einungis þær sem eru með hakinu fyrst og setja svo hakið í aftur á þær færslur sem fóru ekki yfir og breyta um aðferð (Já eða Nei í Setja inn fyrirframgreiðslur)
...
Hægt er að eyða dagpeningafærslum úr útborgun ef útborgun er opin. Þá er farið í Aðgerðir og Eyða dagpeningayfirfærslum. Þá eru færslurnar komnar til baka undir síunni "Greiddar ótengdar".
Til að flýta ferlinu er hægt að lesa dagpeningana inn sjá hér
...