Ferlið: Laun - Úttak - Flóra - Vörpun launaliða
...
Skilgreina þarf möppun fyrir skil upplýsinga yfir til Flóru - Launagátt. og til baka við breytingar í Launagátt.
Það er annarsvegar verið að vinna með Greiningarflokka og hinsvegar Launagátt, það er skilyrði að fylla inn í bæði svæðin.
Greiningarflokkar: þá er verið að skilgreina hvað skilar sér yfir í Flóru sem launaupplýsingar, veikindaupplýsingar og orlofs/réttindaupplýsingar.
...
Launagátt: Þá er verið að skilgreina hvaða launaliðir skila sér til birtingar í Flóru - Launagátt og hinsvegar þegar verið er að senda breytingar til baka í H3.
...
Þegar búið er að fylla inn í vörpunartöfluna þá þarf að smella á Uppfæra gögn undir Aðgerðir, gæta þess að þegar verið er að bæta við eða taka út skráningar í vörpunartöflu að smella þá á Uppfæra gögn.
Þegar smellt er á Uppfæra gögn þá færast gögn yfir um Starfsaldur, Orlof, laun og veikindi útfrá skilgreiningu í möppun.
...
Fyrst þarf að varpa launaliðum yfir í Flóru.
Sjá leiðbeiningar hér: Varpa launaliði yfir í Flóru
Starfaflokkar
Starfaflokkar eru stofnaðir undir Laun - Jafnlaunagögn - Starfaflokkar - Starfaflokkar
...
Röðun á starfaflokk tilgreinir hvaða starfaflokka notandi í Flóru getur séð og því er mikilvægt að hafa röðun á starfaflokkunum rétta.
Þegar launabreyting er stofnuð í Flóru, gefst sá möguleiki á að breyta starfaflokki starfsmanns. Athugið notandinn sem er að framkvæma launabreytinguna sér einungis þá starfaflokka sem eru með lægra númer í röðun en þeirra starfaflokkur.
Til dæmi:
Notandi í starfaflokki Sölumaður (nr. 5 í röðun) sér einungis starfaflokka Skrifstofa (nr. 4) og Almennt (nr. 1). En Notandi í starfaflokki Stjórnendur (nr. 8) sér alla flokkana á lista þar sem 8 er hæðsta talan í röðun (Útskýring er m.v. mynd hér að neðan).
Hægt er að setja lýsingu á starfaflokki í dálkinn “Annað”, og þær upplýsingar munu birtast í Flóru.
...