Versions Compared

Key

  • This line was added.
  • This line was removed.
  • Formatting was changed.

...

Oft er hafður einn bunki fyrir hvern mánuð eða hvert ár, en stundum þarf að skipta honum upp, til dæmis þegar hluti starfsmanna fær dagpeningana greidda áður en ferðin er farin en aðrir fá greitt í næstu útborgun.

Til að flýta fyrir skráningu er hægt að skrá sjálfgefin gildi sem birtast þá sjálfkrafa þegar skrá á nýja færslu. Til þess þarf notandi að hafa aðgang að H3 Laun. Þá er farið í Laun -> Stofn -> Stillir og þau gildi sem nota á slegin inn.


Ath. Þau gildi sem eru ekki valin úr fellilista í stillinum þarf að vera að vera búið að forskrá í Dagpeningar -> Stofn.

Image Added

Til að flýta fyrir skráningu er hægt að skrá þau gildi sem eiga að vera sjálfgefin í skráningunni í Laun -> Stofn -> StillirÞað eru gildin staður, komu- og brottfararnúmer (flug / ferð), farartæki og stöðuheitiTil þess þarf notandi að hafa aðgang að H3 Laun.Image Removed 

Hér má sjá dæmi um hvernig gildi eru forskráð í stilli og hvernig þau birtast þegar skrá á nýja færslu:

Image Added Image Added




Þegar búið er að skrá dagpeningafærslurnar er farið í Aðgerðir (niðri hægra megin) og valið að Reikna dagpeninga. Þá kemur upp ferill með sjálfgefnum gildum sem sett hafa verið í stilli, þessum gildum er hægt að breyta í hverri færslu fyrir sig.  Hægt er að reikna færslurnar og sjá útreikning áður enn þær eru greiddar. Ath. passa þarf að gengi sé uppfært: Innlestur -> Gengi -> Innlestur á gengi

Ef stofnaðar eru bankafærslur þarf að vera skráður gjaldeyrisreikningur á viðkomandi starfsmann, hægt er að skrá gjaldeyrisreikninginn undir Stofn -> Gjaldeyrisreikningar launamanna.

 Ef valið er Já í "Stofna bankafærslur" verða til bankafærslur sem hægt er að greiða. Jafnframt fá færslurnar merkinguna greiddar og eru ekki lengur sýnilegar undir síunni "Ógreiddir", einungis undir "Greiddir ótengdir". Ekki er lengur hægt að breyta færslunum eftir að þær eru greiddar.

"Nota brottfaradag -1" er notað ef dagpeningar eru greiddir fyrirfram og gengi dagsins er ekki komið inn.

Ef athugun á margfærslum er valin er keyrð aðgerð í lok reiknings sem athugar hvort aðilar eigi dagpeningafærslur á sama tímabili og þær færslur sem verið er að reikna. Þetta veldur ekki villu í reikning heldur er þetta einungis til upplýsinga.

Image Removed

Í mánuðinum er hægt að framkvæma þetta ferli eins oft og þurfa þykir. Á endanum eru færslurnar fluttar yfir í útborgun. Þá er farið í Aðgerðir og  Tengja útborgun og fylltur út ferillinn sem kemur upp.

Til að setja færslur í útborgun er farið í Aðgerðir -> Tengja útborgun

Image Removed

"Greiðsludagur frá" og "Greiðsludagur til" er dagurinn í dag, þ,e, dagsetning þegar aðgerðin er framkvæmd.

Setja inn rétta útborgun, hún þarf að vera opin.

Launaliðurinn sem er valinn í "Launaliður" er dagpeningalaunaliður, oft 500 en gæti verið annar í þínu fyrirtæki. Launaliðir sem eru notaðir fyrir dagpeninga eru með launategundina 75 - Dagpeningar.

Ef á að reikna skatt á færslurnar er valið Já í  "Nota skattareglur dagpeninga". Þá reiknar kerfið skatt ef mismunur er á  upphæð í Dagpeningauppsetningu og Skattareglu dagpeninga sem er á viðkomandi Dagpeningauppsetningu.

Ef búið er að ganga frá greiðslu til starfsmanns er valið að setja inn fyrirframgreiðslur. Ef valið er Nei þá er verið að greiða dagpeningafærslurnar út í launakerfinu (viðkomandi útborgun). Hægt er að nota báðar aðferðir í sömu útborgun en þá verður að flytja færslurnar í tvennu lagi og hafa þær í 2 bunkum. Þetta er hægt með því að taka hakið úr Greiðist nú og flytja einungis þær sem eru með hakinu fyrst og setja svo hakið í aftur á þær færslur sem fóru ekki yfir og breyta um aðferð (Já eða Nei í Setja inn fyrirframgreiðslur)

Hægt er að taka dagpeningafærslur úr útborgun ef  útborgun er opin. Þá er farið í Aðgerðir og Taka dagpeningayfirfærslur úr útborgun, útborgun valin og biðfærslubunki ef vill. Biðfærslubunki er valinn ef það á að taka færslur úr einum bunka af mörgum sem eru í sömu útborgun, úr útborguninni. Ef færslurnar eru teknar úr útborgun eru færslurnar komnar til baka undir síunni "Greiddar ótengdar". Ef bankafærslur hafa ekki verið greiddar er einnig hægt að eyða færslunum.

...

Nánari leiðbeiningar má finna í kaflanum Unnið með dagpeningafærslur