Nú gefst viðskiptavinum sem eru í HCM hýsingu Advania kostur á að þurfa ekki að remote-a (Remote Desktop Connection) sig til að tengjast H3 kerfinu.
→ Þessi breyting hefur þau áhrif að það er mun auðveldara að skrá sig inn í kerfið H3 og öll umsýsla launavinnslu verður mun betri.
Kostir:
Geta skráð sig inn á H3 kerfið lausnina beint af sinni vél (tölvu)
Geta unnið með kerfið H3 og slitið frá skjámyndir á fleiri en einn skjá.
→ Advania heldur áfram og sér um allar uppfærslur.
Hvað þarf að gera?
Til að geta byrjað að nota H3 Kerfið án þess að remote-a sig inn, þá þarf eftirfarandi að vera uppsett á vélinni (tölvunni).
Slóð sem hefur verið afhent hverju fyrirtæki fyrir sig https://fyrirtæki.hcm.is/tmsc/publish.htm (Í stað fyrirtæki þá er fyrirtækisnafn)
...
Microsoft .NET Framework 4.8 (64 - bita) → https://dotnet.microsoft.com/en-us/download/dotnet-framework/thank-you/net48-web-installer
Microsoft Edge WebView2 (64 - bita) → https://go.microsoft.com/fwlink/p/?LinkId=2124703
SAP Crystal Reports Runtime Engine for .NET Framework (Service Pack 32 - 64 - bita) → https://origin-az.softwaredownloads.sap.com/public/file/0020000000661872022
Microsoft OLE DB Driver for SQL Server (18.6.5) → https://go.microsoft.com/fwlink/?linkid=2218891
Athugið stundum þarf aðstoð kerfisstjóra til að install-a ofangreindum forritum, því þá er viðkomandi notandi ekki með adminstrator réttindi á vélinni sinni.
...
Að lokum þarf að gera
...
þrennt til viðbótar:
Skipta út slóðum, svo ekki sé tilvísun í tsclient, sem dæmi:
...
Prófa sendingu skilagreinar með tölvupósti. Ef póststillingin á netfanginu sem er skráð fyrir tölvupóst sendingum skilagreina er tengd office 365, þá þarf ekkert að gera, en ef það er tengt srelay sendingu, þarf að skoða þann part í samvinnu við Ísleif.
Tungumála og svæðis stillingar þurfa að vera settar á íslensku til þess að dagsetningar og upphæðir birist í réttu formati bæði þegar upplýsingar eru lesnar inn og teknar út úr H3.
Gott er að fara í Control Panel - undir Clock and region og ýta á Change date, time, or number formats til að ganga úr skugga um að sniðmát er sett á íslensku.
MAC notendur athugið:
Þeir notendur sem eru að nota MAC vélar geta ekki sett H3 lausnina upp á vélina sína.
Umhverfið hjá þeim notendum þarf að vera Windows based, af því að clickonce application er net based og það er ekki í boði á MAC.
Ef notandi sem notar MAC remote-ar sig inn á Windows vél, þá er hægt að setja H3 upp, sem þá þýðir að hjá MAC notendum verður einungis eitt remote en ekki tvö.
Teningar:
Hvernig er hægt að tengjast teningaskýrslum utan remote (Remote Desktop Connection).
Fyrir H3 teninga þá þarf að setja þá sérstaklega upp og má finna leiðbeiningar hér:
Tengjast teningaskýrslum utan H3 hýsingar Tengja teningaskýrslu við H3 kerfi sem er í HCM Advania