Þegar búið er að skrá allar almennar upplýsingar inn á starfsmann í flipanum starfsmaður þarf að skrá inn lífeyrisupplýsingar fyrir starfsmann og er þá farið í flipann Lífsj. og Stéttarf.
...
Listarnir yfir lífeyrissjóði í flettigluggunum felligluggunum eru ekki alveg tæmandi en allir algengustu sjóðirnir eiga að vera inni í stofnupplýsingum sem fylgja með kerfinu. Ef það vantar sjóði þá þarf að stofna þá undir Stofn - Lífeyrissjóðir.
Áður en byrjað er að skrá inn lífeyrissjóðsupplýsingar á starfsmannaspjöldin þarf að velja um aðferð við skráningu séreignarsjóða en tvær aðferðir eru í boði, Aðferð 1 og Aðferð 2, sjá nánari upplýsingar hér
Séreignarsjóðir - Aðferð 1 og Aðferð 2
Þegar búið er að velja hvor aðferðin er notuð er hægt að fara að skrá inn lífeyrissjóðsupplýsingar fyrir starfsmenn skv. þeirri aðferð sem notuð er.Þegar búið er að skrá inn allar upplýsingar um lífeyrissjóði er farið í að skrá inn upplýsingar um stéttarfélög starfsmanna og er það gert í sama flipa, sjá nánari upplýsingar hér Stofn - Starfsmenn - Stéttarfélög starfsmanna
Skráning lífeyrissjóða á starfsmann
Farið í Starfsmenn og í flipann Lífsj. og Stéttarf. og smellið á plúsinn í Lífeyrissjóðir til að byrja að skrá upplýsingar. Algengt er að skrá á 3 línur ef viðkomandi er með séreignarsjóð til viðbótar við skyldulífeyrissjóð.
...
Dæmi um skráningu ef aðferð 1 er valin
...
Dæmi um skráningu ef aðferð 2 er valin
...