Orlofs- og þrepahækkanir eru staðsettar undir Laun - Laun - Hækkanir - Hækkanir.
Í H3 er boðið upp á sjálfvirkar hækkanir tengdar lífaldri og starfsaldri. Hækkanir taka til orlofsflokka, launaflokka og þrepa.
Þeir sem eru búnir að virkja tímavídd, þá stofnast nú tímarvíddarfærsla fyrir viðeigandi hækkun í tímarvíddartöflu starfsmanns og miðast hækkunin ávallt við færsludag útborgunnar (-1 mánuð fyrir eftirágreidda).
...
Svo hækkunin sé réttmætt þá er mikilvægt að röðun launaflokka sé rétt skilgreint og ekki sé um tvöföldun að ræða, hægt er að sannreyna gögnin með því að smella á Sannreyna gögn áður en hækkunin er framkvæmd.
Eftir að launaflokkahækkun er framkvæmd birtist athugasemdaglugginn neðst með upplýsingum um hvaða starfsmenn fengu launaflokka hækkun, úr og í hvaða flokka hækkunin framkvæmdi.
...