Skip to end of metadata
Go to start of metadata

You are viewing an old version of this page. View the current version.

Compare with Current View Page History

« Previous Version 10 Next »

Nú er hægt að skrá færslur á marga starfsmenn í einu í tímavídd.

Oft er óskað eftir því að breyta mörgum starfsmönnum í einu t.d. innan x deildar og eða ef t.d. breyting á sér stað þvert yfir fyrirtækið, fyrir x launatöflu o.s.frv. þá er það hægt í H3 í dag.

Ferli: Laun - Starfsmenn - Aðgerðir - Stofna Tímavídd

Einnig er hægt að velja marga úr starfsmannalista með því að halda niðri ctrl takkanum velja starfsmenn úr lista og smella á “stofna tímavídd”

Með því að velja starfsmenn úr lista og smella svo á “stofna tímavídd” þá koma þeir starfsmenn valdir undir “starfsmaður” 6 Starfsmenn valdir.

Ef smellt er beint á Stofna tímavídd þá er hægt að velja úr lista þegar smellt er á stækkunarglerið, filtera jafnavel niður á deild, starfsheiti.

Dæmi: Ég vil breyta öllum starfsmönnum í deildinni Laun og mannauður í 80% ráðningarhlutfall frá 1.1.2021

Ég filtera á deildina, haka í starfsmennina og smelli á “velja starfsmenn”

Set inn gildistímann í gildir frá 1.1.2021 og breyti í ráðningarhlutfalli í 80, skrái athugsemd ástæðu breytinga og smelli á Halda áfram

Þá kemur upp gluggi með yfirlit yfir þá starfsmenn sem breyttir voru, hægt er að smella á viðkomandi starfsmann, þá birtist í yfirlit hvernig viðkomandi starfsmaður var og hvernig hann verður eftir breytingu.

Gott er að haka í “Taka út breytingarskýrslu” og vista hjá sér, þá er hægt að fara yfir breytingarnar eftirá.

Þegar búið er að fara yfir breytingar þá er smellt á “Staðfesta skráningu”

Ef það er til tímavídd á starfsmann fram í tímann þá kemur athugsemd þess efnis og hægt er að fara með músina yfir merkið til að sjá athugsemdina.

Smellt er svo á “Loka”

Ef hakað var í að “Taka út breytingarskýrslu” þá kemur valmöguleiki að vista niður textaskjalið um breytingarnar.

Bláa hakið táknar að breytingin tókst en rauða flaggið táknar að breyting var ekki framkvæmd og þarf að gera viðeigandi ráðstafanir inn í viðkomandi starfsmanni.

  • No labels