Val á dálkum í samþykkarferli
Til að velja hvaða dálkar birtast í samþykktarferli eru notaðir Greiningarflokkar. Hægt er að númera greiningarflokka til að velja í hvaða röð þeir birtast. Greiningarflokkar sem ekki eru í útborgun sjást ekki í samþykktarferli.
Laun>Stofn>Launaliðir>Greiningarflokkar
Birtist sem:
Val á launaliðum í samþykktarferli
Til að velja hvaða launaliðir birtast í samþykktarferli eru greiningartegundir (sem hafa þegar verið tengdar við launaliði) settar undir viðeigandi greiningarflokka sem birtast eiga í samþykktarferli
Laun>Stofn>Launaliðir>Greiningartegundir
Til að veikindakostnaður verði sýnilegur í skjámynd þarf að hafa kostnaðartegund fyrir veikindi og hún þarf að vera merkt með Stöðluð flokkun = „STVE“
NOTENDAAÐGANGUR AÐ SAMÞYKKTARFERLI
Launafulltrúi
Í hlutverk launafulltrúa s.s. „Laun –(F)“ er sett einingin 5009 til að hefja staðfestingu
Aðgangsstýringin Launaáætlun - Raunmánuður þarf að vera valinn frá þeim tíma sem aðili má sjá gögn og Launaáætlun - Deildir
Stjórnandi
Í hlutverki stjórnanda þurfa að vera einingarnar 5008 „Laun –Samþykktaraðili“ og 5022 "Laun - yfirlits síða"
Einnig þarf að gefa stjórnanda aðgang að þeim deildum sem hann á að samþykkja með því að setja á hann aðgangsstýringar:
Launaáætlun / Laun–Deildir
Launaáætlun / Laun –Raunmánuður frá og með
Launaáætlun –Áætlanamánuður frá og með
Eftirlitsaðilar
Fyrir aðila s.s stjórnendur eða endurskoðendur sem eingöngu eiga að fylgjast með samþykktarferli er búið til hlutverk með einingu nr 5010.
Uppsetning á vef
Ef þú færð villu við að opna samþykktarferlið eftir að hafa fylgt leiðbeiningunum hér að ofan gæti þurft að setja upp hjá þér vefsíðu sem kerfið þarf að nota við þessa vinnslu. Vinsamlega sendu villuna á h3@advania.is og við göngum í málið.