Þegar tímavídd hefur verið virkjuð þá er EKKI hægt að bakka þeirri aðgerð.
Áður en tímavídd er virkjuð þá er ráðlegt að endurbyggja innri starfsferla með aðgerðinni: Kerfisumsjón > Vinnslur> Innri starfsferlar > Endurbyggja innri starfsferla
ATH. að einingin sys2190 þarf að vera á Kerfisumsjónarhlutverki til að ná að framkvæma vinnsluna.
Næsta skref er að virkja tímavíddina Laun > Stofn > Stillir:
Velja Laun – tímavídd og breyta í „Já“. Svo þarf að smella á Skrá gildi.
Þá kemur upp gluggi þar sem notanda er boðið að endurræsa H3. Smella þarf á Yes og þá endurræsist kerfið og tímavíddin virkjast.
Viðskiptavinir sem EKKI virkja tímavíddina, þurfa engu að breyta og halda áfram að vinna eins og áður.