Í H3 Ráðningar má senda skjal til undirritunar á þriðja aðila sem er þá hvorki umsækjandi né starfsmaður fyrirtækisins, en skjalið tengist samt sem áður umsækjandandanum / starfsmanninum. Þessi möguleiki kemur til dæmis að góðum notum þegar um að ræða einstakling sem er undir lögaldri og er í stöðu umsækjanda og forráðamaður þarf að undirrita samþykki vegna starfs í vinnuskóla svo dæmi sé tekið. Skjalið er samt sem áður tengt viðkomandi umsækjanda / starfsmanni í kerfinu.
Til að geta sent skjal í undirritun þriðja aðila þurfa í umsókn umsækjandans að vera skráðir einn eða fleiri aðstandendur með skráða kennitölu og netfang. Undir Atriðasafn - Aðstandendur þurfa þessi tvö atriði að vera til staðar, það er að segja kennitala aðstandanda og netfang aðstandanda. Ef þau eru ekki til staðar þarf að hafa samband við ráðgjafa með því að senda póst á netfangið H3@advania.is til að fá aðstoð ráðgjafa H3 við uppsetningu.
Í Ráðningar - Umsóknir þarf að velja umsækjandann sem á að undirrita vegna, fara inn í umsóknina hans og fara í Rafrænar undirskriftir - Undirritun þriðja aðila (undir pílu).
Þá opnast hinn hefðbundni skráningargluggi fyrir Signet en nú með aukareit þar sem þriðji aðili / forráðamaður er tilgreindur ásamt netfangi hans. Að öðru leyti er skráningarglugginn eins, þ.e. skjal er sett inn, tegund skjals tilgreind, skilaboð sett inn ef vill, tölvupóstsniðmát valið ásamt tímaramma og valið úr lista hver eigi að undirrita fyrir hönd fyrirtækis. Þegar þær upplýsingar hafa verið slegnar inn og smellt á Áfram getur forráðamaðurinn fulltrúi fyrirtækisins nálgast skjalið á Signet til undirritunar.
Ath. þar sem forráðamenn geta verið fleiri en einn þarf að smella í reitinn til að velja forráðamann, reiturinn verður blár.