Við veljum inn dálka í þessa skjámynd sem við ætlum að nota í áætlun og hvernig þeir reiknast.
1. Við byrjum á því að velja þá áætlanadálka sem við ætlum að nota
2. Og skilgreinum hvernig við reiknum hvern áætlunardálk fyrir sig, hér er nauðsynlegt að vita hvernig þetta reiknast í launakerfinu til þess að samanburður á áætlun og raun sé raunhæfur.
Línurnar í stillinum hér að neðan eru áætlanadálkarnir sem eru í efri töflunni.
Lóðréttu dálkarnir eru áætlanadálkar sem reiknast sem hlutfall af þeim sem eru í línunum.
Við höfum til dæmis 2 dálka fyrir orlof,
"Orlof" - hér setjum við hak í allar línur sem reikna á orlof á í krónum, regla í starfsmann segir síðan til um hvort viðkomandi fái orlofið á alla dálka.
"Orlof(Dv safnað rest reiknað) setjum inn hak á sömu línur og að ofan greinir nema á mánaðarlaun og aðra dagvinnuliði ef við á, gerist óháð reglu á starfsmanni.
Í upphafi áætlunargerðar hvert ár er þessi tafla yfirfarin, ekkert gert ef á að áætla á sama hátt og áður en ef á að fjölga eða fækka dálkum er búin til ný færsla með því að smella á Insert í "Heiti". Sem sagt engu er breytt hér heldur stofnuð ný færsla.