Þjóðskrártenging

Það eru 4 leiðir til að tengja H3 við Þjóðskrá:

  1. Handvirkur innlestur: Lesin inn textaskrá með heildarskrá í upphafi. Textaskrá með breytingum, sem aðgengileg er skv. hlekk í fyrstu viku hvers mánaðar, lesin inn eftir þörfum. 

  2. Sjálfvirkur lestur úr grunni fyrir annað kerfi sem viðskiptavinurinn er með aðgang að.

  3. Sjálfvirkur innlestur frá t.d. Advania eða Ferli – gera þarf samning um það sérstaklega.

  4. Beintenging HCM viðskiptavina við þjóðskrárgrunn og þarf viðkomandi viðskiptavinur að vera með áskriftarsamning hjá Advania.



Hvað breytist

  • Þjóðskráin  er aðgengileg í Uppflettiskrár-Þjóðskrá

  • Þegar nýr launamaður er stofnaður eru upplýsingar sóttar,  lögheimili og aðsetur verður það sama.

Heimilisföng þeirra launamanna sem þegar eru til eru uppfærð með því að fara í Aðgerðir inni í Launamenn, ef lögheimili og aðsetur er ekki það sama er lögheimilið einungis uppfært

Tæknimaður hjá Advania þarf að koma að því að stilla af sjálfvirkan innlestur, ef þess er óskað er skilvirkast að senda póst á h3@advania.is

 

ATHUGIÐ: Til þess að hægt sé að tengja H3 við þjóðskrá þarf viðkomandi fyrirtæki að vera áskrifandi að Þjóðskrá.

Þjóðskráráskrift er fáanleg hjá nokkrum aðilum þar á meðal Advania.