Búa til nýja viðhengistegund (skúffu í skjalaskáp)
Til þess að geta búið til nýja möppu í skjalaskáp þarf að hafa eininguna hrm2021 Tegundir viðhengja
Smellt er á Skjalaskápur > Tegundir viðhengja í H3 Mannauði (Stjórnun):
Þá opnast listi yfir allar tegundir viðhengja (möppur) sem til eru í skjalaskápnum.
Til að bæta við nýrri tegund (nýrri skúffu) er smellt á litla hvíta blaðsíðutáknið.
Þá opnast skjámynd þar sem:
Velja þarf númer (sem ekki er nú þegar í notkun)
Skrifa heiti í dálkinn Heiti tegundar
Vista
Þá er þessi mappa aðgengileg H3 stjórnun og hægt að hengja í hana viðhengi.