Flóra - Mínar Upplýsingar
Hér er farið yfir virkni fyrir starfsmann.
Undir Mínar upplýsingar > Grunnupplýsingar, sérð þú Persónu- og Starfsupplýsingar um starfsmann, eins og þær eru skráðar í H3.
Eftir júní uppfærslu (2025) er einnig verið að senda einka farsíma og netfang.
Því er nú verið að senda frá H3 yfir í Flóru:
Vinnusíma
Farsíma (Hér er átt við um símanúmer sem tengist vinnu og birtist það því undir Vinna í Flóru).
Einka farsíma
Vinnunetfang
Einkanetfang
Það þarf að vera skráð netfang í reitnum Vinnunetfang og símanúmer í reitnum Farsími. Annað er valfrjálst.
ATH! Þótt Vinnusími, Farsími, Einka farsími, Vinnunetfang og Einkanetfang er allt útfyllt í H3. Þá birtast ekki allar þær upplýsingar í skipuriti í Flóru. Í skipuritinu eru einungis birtar upplýsingar tengt vinnu. En það er:
Vinnusími
Farsími
Vinnunetfang
Undir Mínar upplýsingar > Orlof og réttindi er að finna upplýsingar um orlof, starfsaldur og uppsöfnuð réttindi.
Hægt er að velja hvort eigi að birta orlof í tímum eða dögum.
Orlofstaða í Flóru miðast við uppfærð laun í H3, nema þegar kemur að 1. maí. Þá keyrist vinnsla sem uppfærir orlofsstöðu, þar sem nýtt orlofsár byrjar þann dag. Ef vinnslan myndi ekki keyrast þá væri staða m.v. nýtt orlofsár ekki að birtast fyrr en laun væru uppfærð.
Laust til úttektar sýnir stöðu orlofs í tímum/dögum m.v. síðustu útborgun.
Dæmi 1: starfsmaður tekur tvo daga í orlof á tímabili fyrir síðustu útborgun og vinnuskylda viðkomandi er 7,5 klst. per dag. Þá væri reikningurinn:
Dagar í orlofi*vinnuskylda=tíma fjöldi nýtt í orlof
2 dagar*7,5 klst. = 15
starfsmaður á 340 klst. laust til úttektar.
340-15=325 klst. sem væri laust til úttektar eftir útborgun.
Dæmi 2: starfsmaður tekur út 1,5 dag í orlof, vinnuskylda viðkomandi er 7,85 klst. per dag.
1,5 dagur*7,85 klst. = 11,78 klst. orlof myndi niður færast um þessa tölu.
Starfsmaður á 188,8 klst. laust til úttektar.
188,8-11,78=177,02 klst. laust til úttektar eftir útborgun
Talan fyrir aftan skástrikið sýnir stöðu á orlofi í upphafi orlofsárs.
Orlof í samning sýnir þá fjölda daga í orlofi miða við réttindi samkvæmt samning.
Starfsaldur
Undir Stillingar er valið hvaða tegund af starfsaldri er birt í Flóru.
Í H3 undir Kerfisumsjón - Flóra - Stöðutafla starfssaldurs og orlofs er hægt að sjá skoða stöðu starfsmanns m.v. uppfærðar útborganir.
Starfsaldur birtir upplýsingar m.v. uppfærð laun.
Reiknaður starfsaldur, er unninn tími í núverandi fyrirtæki
Til hlunninda er reiknaður starfsaldur + viðbótarstarfsaldur
Til launa er reiknaður starfsaldur + viðbótarstarfsaldur
Til orlofs er reiknaður starfsaldur + viðbótarstarfsaldur
Til starfsaldurs er reiknaður starfsaldur + viðbótarstarfsaldur
Dæmi hér til hliðar:
Reiknaður starfsaldur er 1 ár, 6 mán.
Til hlunninda er 1 ár, 6 mán + 4 mán = 1 ár, 10 mán.
Til launa er 1 ár, 6 mán + 2 ár, 1 mán + 6 mán = 4 ár, 1 mán.
Til orlofs er 1 ár, 6 mán + 4 mán = 1 ár, 10 mán.
Til starfsaldurs er 1 ár, 6 mán + 2 ár, 1 mán + 4 mán + 1 ár = 4 ár, 11 mán.
Upplýsingar úr H3:
Hægt er að birta launaseðla inn á Flóru. Þá getur starfsfólk séð launaseðla sína undir Launaupplýsingar.
ATH. einingis birtast launaseðlar inn á Flóru eftir að uppsetning á Flóru hefur verið framkvæmd og næsta launakeyrsla uppfærð.
Sjá nánar hér: Launaseðlar vistaðir í skjalaskáp
Það er hægt að skoða Flóru í öllum snjalltækjum og viðmót skalar sig í samræmi við stærð tækisins. Sjá dæmi um viðmót í síma: