Launaseðlar og launamiðar til island.is (og Flóru)
H3 býður launagreiðendum hjá ríki og sveitarfélögum að senda launaseðla til http://island.is .
Ef óskað er eftir þessari virkni þá bendum við ykkur að hafa samband með tölvupóst á netfangið h3@advania.is.
Í framhaldi af uppsetningu hjá Advania þurfa launagreiðendur að gera eftirfarandi:
Ferli: Laun > Stofn > Stillir er kominn nýr kafli þegar ýtt er á felligluggann sem heitir Laun – Vefþjónusta.
Þar undir eru svo valmöguleikar um hvort eigi að senda launaseðla og/eða launamiða til Flóru og http://island.is .
ATH: Svo launaseðlar/launamiðar birtast í Flóru, þurfa ráðgjafar Advania einnig að virkja sérstaklega birtingu launaseðla/launamiða í Flóru. Hægt er að senda beiðni um það á mannaudslausnir@advania.is.
Launaseðlar
Ferli: Laun > Útborgun þarf að vera texti í ”Heiti í skjalaskáp” ásamt haki í ”Vista launaseðla í skjalaskáp”.
Launaseðlar sendast til Flóru og island.is ef á við, þegar útborgun er uppfærð og því birtast einungis þeir launaseðlar sem eru uppfærðir eftir að stilling er sett upp.
Launamiðar
Eining: Salary3070 - senda launamiða til island.is
Ferli: Laun > Úttak > Launamiðar > Vista í skjalaskáp.
Notandi þarf að hafa aðgnag að Tegund viðhengja nr. -41: Launamiði
Ef stilling er til staðar að senda launamiða til Flóru og island.is ef á við, þá fara launamiðar yfir þegar þeir eru vistaðir í skjalaskáp.
Launaseðlar vistaðir í skjalaskáp Launamiðar vistaðir í skjalaskáp