Taktikal - Tölvupóstsniðmát fyrir sendingu rafrænna skjala
Hafi Taktikal verið tengt við H3 hjá notanda, er hægt að senda skjöl til undirritunar beint úr H3 og þá eru póstarnir sendir út í nafni fyrirtækisins og hægt að aðlaga þá í Stjórnun > Skilaboð > Sniðmát. Velja þarf netfang sem nota skal til að senda frá og skrá það í bakenda H3 kerfis (ráðgjafi Advania gerir).
Hægt er að búa til ólík tölvupóstsniðmát í H3 eftir því um hvers konar skjal til undirritunar er að ræða, t.d. starfslýsingar, ráðningarsamningar, viðaukar, samningar um samgöngustyrk, trúnaðaryfirlýsingar o.s.frv.
Tölvupóstsniðmátin í H3 er að finna undir Stjórnun > Skilaboð > Sniðmát:
Búa til nýtt tölvupóstsniðmát
Ef búa á til nýtt tölvupóstsniðmát fyrir annars konar samninga en ráðningarsamninga, t.d. fyrir samninga um samgöngustyrk, þarf fyrst að búa til nýja færslu (með því að smella á hvíta blaðið (eða Insert á lyklaborðinu)) og fylla svo út reitina á sambærilegan hátt og hér segir:
Númer*: Velja einkvæmt númer
Heiti: Samningur um samgöngustyrk
Flokkur*: TM_HRM (eins og á mynd)
Tegund viðhengis: Velja þá viðhengistegund sem við á - skjalið skilar sér í þá möppu við undirritun
Tegund tölvupósts: TM_SIGNET (eins og á mynd)
Fyrirsögn tölvupósts*: Samningur bíður samþykktar (eða annar viðeigandi texti)
Texti tölvupósts þarf að innihalda breytur og texta til viðtakanda varðandi sendingu þessa skjals til undirritunar.
ATH: Breyturnar fyrir tölvupóstsniðmátin, sbr. breytuna Nafn / “$[employee_name]”, má finna undir T-hnappnum í ritlinum:
Auðvelt er að fylgjast með póstunum sem sendir hafa verið úr H3 vegna Taktikal (Stjórnun > Skilaboð), t.d. með því að sía á Tegund tölvupósts (“Tölvupóstur sendur frá Signet”):
Undir Stofn - Stillir - Taktikal vefþj. - X )Ef sett er já í upphafsgildi þá sendir kerfið póst frá því netfangi sem er í HRMemail (netfang mannauðsdeildar, notað fyrir allskyns tilkynningarer) eða Taktikal-EmailFrom (netfang eingöngu fyrir Taktikal tölvupósta). Ef Nei er í upphafsgildi kemur pósturinn frá Taktikal netfangi.
Ef sett er Já, þá mun H3 senda tölvupóst og Taktikal sendir SMS um að beðið er eftir undirritun
Ef sett er Nei, þá mun Taktikal senda tölvupóst og ekkert SMS verður sent.