Almennt um Samtal

Almennt um Samtal

 

Slóðin að Samtalinu er: https://samtal.advania.is

Innskráning

Samtal notar öruggar innskráningaraðferðir, tveggja þátta auðkenningu annars vegar og Single sign-on (SSO) hins vegar.

SSO: Á vinnustöðum þar sem SSO hefur verið sett upp fyrir Samtalið, þurfa þeir notendur sem eru með vinnunetfangið sitt skráð í Samtalinu, aðeins að skrá sig inn í tölvuna sína og geta þá opnað Samtalið án þess að þurfa að slá inn lykilorð í hvert skipti.

Ef þú hefur áhuga á að virkja SSO þá geturðu sent okkur póst á samtal@advania.is og við höfum samband við þig með frekari upplýsingar.

Hér fyrir neðan eru leiðbeiningar varðandi möguleika fyrir SSO tengingu.

Tveggja þátta auðkenning: Notendur á vinnustöðum þar sem SSO hefur ekki verið sett upp fyrir Samtalið, nota tveggja þátta auðkenningu við innskráningu. Þeir þurfa þá að skrá netfangið sitt og búa sér til lykilorð og geta svo látið vafrann um að vista upplýsingarnar í minni þannig að þeir þurfi ekki að muna lykilorðið sitt.

 

Tungumál

Ef kerfið opnast á ensku er hægt að velja íslensku með því að smella á örina efst í hægra horni síðunnar:

 

image-20250116-151334.png

 

 Samtalið opnast á síðunni Heim en það er síða notandans þar sem aðeins þau samtöl er að finna sem stofnuð hafa verið fyrir notandann sjálfan. Dæmið á myndinni sýnir að viðkomandi notandi á engin gögn ennþá í Samtalinu.

 

image-20260810-095031.png

 

 

Valmyndir

Heimildir notandans stýra því hvaða valmyndir birtast á stikunni efst:

·       Einungis mannauður sér valmyndirnar Sniðmát og Stillingar.

·       Einungis stjórnendur sjá valmyndina Samtöl.

 

image-20260810-095233.png

 

 

Athugaðu að ef engir valmöguleikar birtast á valmyndastikunni þinni, er alltaf hægt að kalla þá fram með því að smella á strikin þrjú efst á síðunni til hægri – og þá birtast þeir í lóðréttum lista.

 

image-20260810-095340.png

 

Nýtt yfirlit

Þegar nýja yfirlitið er opnað kemur upp val um að búa til yfirlit þar sem deildir eru valdar, tímabil sem samtölin voru tekin og sniðmát samtala.

 

image-20260810-150012.png

 

 

Fyrsta skrefið er að velja deildir. Hægt er að leita að deildarnúmeri, sía eftir stjórnendum og sía eftir yfirdeildum.

 

image-20260810-150026.png

 

Næsta skref er að velja tímabil fyrir yfirlitið.

 

image-20260810-150053.png

 

Síðasta skrefið í uppsetningu yfirlitsins er að velja sniðmát eftir því sem við á.

 

image-20260810-150111.png

 

Þegar búið er að setja upp yfirlitið opnast það með upplýsingum út frá þeim breytum sem voru valdar í fyrri skrefum.

image-20260810-150128.png

 

Í yfirlitinu má sjá hlutfall starfsfólks sem er með eða án samtals. Einnig er hægt að sjá fjölda stofnaðra samtala, samtöl sem eru í vinnslu og samtöl sem er lok

Það er hægt að sjá frekari sundurliðun á starfsfólki og samtölum með því að ýta á sjá starfsfólk og sjá samtöl.

Með því að ýta á Breyta vali er hægt að breyta grunnbreytum yfirlitsins.

 

image-20260810-150149.png