Flytja viðhengi einstaklings á milli Launamanna og Starfsmanna
Nýrri virkni hefur verið bætt við í Skjalaskáp undir bæði Laun og Stjórnun sem gerir notendum kleift að flytja valin viðhengi milli:
Launamenn → Starfsmenn
Starfsmenn → Launamenn
Athugið: Flutningur er alltaf innan sama fyrirtækis og aðeins á milli skráninga sem tilheyra sama einstaklingi.
Einingar sem veita aðgang að virkni
Laun → Skjalaskápur → Aðgerðir
Flytja viðhengi - Launamenn til Starfsmenn
(eining: salary3064)Flytja viðhengi - Starfsmenn til Launamenn
(eining: salary3066)
Stjórnun → Skjalaskápur → Aðgerðir
Flytja viðhengi - Launamenn til Starfsmenn
(eining: hrm2031)Flytja viðhengi - Starfsmenn til Launamenn
(eining: hrm2032)
Ferli 1: Flytja viðhengi – Launamenn → Starfsmenn
Þessi aðgerð flytur valin viðhengi af einstaklingi frá Launamönnum yfir á Starfsmenn.
Skref-fyrir-skref
Farið í:
Laun → Skjalaskápur (eða Stjórnun → Skjalaskápur)
Finnið þann Launamann sem á við.
Veljið eitt eða fleiri viðhengi sem á að flytja.
Veljið:
Aðgerðir → Flytja viðhengi - Launamenn til StarfsmennValgluggi:
Sjálfkrafa kemur aðalstarf starfsmanns en hægt er að fara í felligluggann og velja annað starf, ef starfsmaður er í fleiri störfum en einu en einu.
Staðfestið flutninginn með því að smella á Áfram.
Niðurstaða
Viðhengið hverfur af Launamanni og birtist undir viðeigandi Starfsmanni.
Ferli 2: Flytja viðhengi – Starfsmenn → Launamenn
Þessi aðgerð flytur viðhengi af Starfsmanni yfir á Launamann.
Skref-fyrir-skref
Farið í:
Laun → Skjalaskápur (eða Stjórnun → Skjalaskápur)
Finnið viðkomandi Starfsmann.
Veljið eitt eða fleiri viðhengi.
Veljið:
Aðgerðir → Flytja viðhengi - Starfsmenn til LaunamennStaðfestið flutning.
Niðurstaða
Viðhengið hverfur af Starfsmanni og birtist undir Launamanni.