Stofnun launamanns og starfsmann í H3 stjórnun

Stofnun launamanns og starfsmann í H3 stjórnun

Hægt er að gefa notenda t.d. stjórnanda aðgang til að stofna handvirkt nýjan starfsmann í gegnum H3 stjórnun.

Upplýsingar fyrir launþega eru skráðar inn í tvö spjöld, annars vegar Launamenn og hins vegar Starfsmenn. Inn í launamannaspjaldið eru skráðar persónulegar upplýsingar en inn í starfsmannaspjaldið eru skráðar upplýsingar sem tengjast starfi starfsmannsins. Ef launamaður gegnir fleira en einu starfi eru upplýsingar fyrir hvert starf skráð í Starfsmenn.

Það þarf alltaf að byrja á að stofna launamann áður en hægt er að stofna starfsmann.

Þegar skráð er inn á launamenn þarf að nota upplýsingar úr ýmsum stofnlistum. Með kerfinu koma uppsettir felligluggar fyrir þjóðerni, lönd, póstnúmer og bankanúmer sem eru allt listar sem þarf að nota í stofnun á launamönnum.

Hér eru hlekkir á þessi tvö skref í stofnun launþega: