Breyta starfslýsingu
Breyta starfslýsingu
Ef þú vilt breyta starfslýsingu sem gefin hefur verið út, þarftu að búa til nýja útgáfu með nýju útgáfunúmeri.
Veldu Stofna nýja útgáfu.
Eins og sjá má á myndinni hér fyrir neðan, þá opnast starfslýsingin nú í stöðunni "Í vinnslu".
Skráðu nýja dagsetningu í reitinn Gildir frá. Athugaðu að þessi dagsetning verður að koma á eftir dagsetningunni sem skráð var í fyrri útgáfunni.
Smelltu á Breyta > gerðu breytingar á textanum.
Smelltu á Vista.
Þegar nýja útgáfan er tilbúin, skaltu smella á Gefa út.
Nú getur þú valið um tvö útgáfunúmer (hér 1.1 eða 2.0) eftir því hvort um minniháttar eða meiriháttar breytingar var að ræða.
Smellt er á Áfram til að vista.