Persónuvernd - afhending gagna starfsmanns

Hægt er að taka út allar upplýsingar starfsmanns í H3+, þ.e. gögn, skjöl og söguskráningu. Mögulegt er að taka gögnin út annars vegar í Excel og hins vegar á Json formi (tölvutækar upplýsingar). Viðhengin koma á því sniði sem þau eru á í kerfinu.  Það er á ábyrgð hvers fyrirtækis hvaða gögn eru afhent starfsmönnum.

Aðgangur að virkninni

Umsjónaraðili kerfisins gefur aðgang að virkninni, en nálgast má virknina á Laun eða Stjórnun flipanum í H3+. 

  • Til að opna fyrir virknina á Laun flipanum, gefðu fullan aðgang að einingu gdpr1001 - GDPR H3 Laun
  • Til að opna fyrir virknina á Stjórnun flipanum, gefðu fullan aðgang að einingu gdpr1101 - GDPR H3 Mannauður

Gott getur verið að búa til sérstakt hlutverk fyrir þennan aðgang. Smelltu hér til að hafa samband við ráðgjafa ef þú vilt fá aðstoð við að gefa þennan aðgang.


Gögnin eru viðkvæm - takmarkaðu aðgang!

Við mælum eindregið með að velja vel hver fær aðgang að virkninni, þar sem með þessum aðgangi sér notandinn öll gögn starfsmannsins frá upphafi, jafnvel þó þeim hafi verið eytt úr H3. 


Til að sækja upplýsingar starfsmanns smellir þú á hnappinn Persónuvernd, slærð inn kennitölu starfsmannsins í glugganum sem þá opnast og smellir á Leita. H3 birtir þá allar upplýsingar sem til eru um starfsmanninn, auk allra viðhengja hans - athugaðu að hér er um talsvert magn gagna að ræða og það getur tekið dágóða stund að hlaða þeim upp. 

Almenn gögn

Gögn sem geymd eru á textaformi birtast í vinstri hluta gluggans, og eru flokkuð eftir einingum og skjámyndum í H3. Smelltu á plúsinn til að skoða gögnin á textaformi.  Einnig getur þú smellt á hlekkinn "Skoða" ef þú hefur aðgang að viðkomandi skjámynd. 

Í listanum er hægt að haka við alla liði með því að haka við í reitinn efst eða velja úr einstaka liði og mun valið endurvarpast í gögnunum sem afhent eru. Loks eru gögnin tekin út í Excel eða Json skjal með því að smella á viðkomandi hnappa. H3 birtir þá glugga þar sem valið er nafn skjalsins og hvar á að vista það. H3 birtir stöðulínu sem segir til um hvernig vinnslan gengur. Þegar stöðulínan hverfur er skjalið tilbúið og hægt að opna það.

Hver flokkur gagna er birtur á sér flipa í Excel skjalinu. Eins og áður sagði eru öll gögn notanda frá upphafi afhent, en dálkurinn Staða færslu gefur til kynna hvort um er að ræða núverandi eða eldri upplýsingar. 

  • 0 = gögnin eru virk - núverandi upplýsingar
  • 1 = gögn sem síðar hefur verið breytt - gamlar og úreltar upplýsingar
  • 2 = gögn sem síðar hefur verið eytt út 

Viðhengi

Skjöl starfsmannsins eru birt í hægri hluta gluggans, og eru flokkuð eftir því á hvaða skjámynd viðkomandi gögn voru hengd. 

Dálkurinn Staða færslu gefur til kynna hver staða skjalsins er:

  • Virk = Skjalið sést í H3.
  • Óvirk = Skjalið sést í H3 en hefur verið óvirkjað - til dæmis vegna þess að það uppfyllir ekki kröfur starfsgreiningar um virk skjöl.
  • Eydd = Skjalinu hefur verið eytt úr H3, og sjást því aðeins í þessu viðmóti.

Í listanum er hægt að haka við alla liði með því að haka við í reitinn efst eða velja úr einstaka liði og mun valið endurvarpast í gögnunum sem afhent eru.  Smelltu á Vista valin skjöl. H3 birtir þá glugga þar sem þú getur búið til möppu til að vista skjölin í eða valið möppu sem þegar er til.  Skjölin verða vistuð á því sniði sem þau eru voru vistuð inn í H3.