Fjársýsluskattur

Til að reikna Fjársýsluskatt í H3 þurfa eftirfarandi forsendur að vera upp settar:

  • Reiknihópurinn RFSSK þarf að vera til

  • Reiknistofninn SFSSK þarf að vera til

  • Launaliðir þurfa að vera með reiknistofninn SFSSK
  • Setja reiknihóp á viðeigandi skipulagseiningu
    • Ef allar deildir fyrirtækisins bera fjársýsluskatt er reiknihópurinn settur á launagreiðanda,
    • Ef stakar deildir fyrirtækisins bera fjársýsluskatt er reiknihópurinn settur á þær deildir.