Skalanlegur ráðningavefur

Hannað hefur verið nýtt útlit á ráðningavef H3 svo vefurinn sé skalanlegur og virki í símum og öðrum snjalltækjum.

Við mælum með að textarnir á forsíðu ráðningavefsins séu yfirfarnir og til að ráðningavefurinn líti sem best út er heppilegast að hafa textana frekar knappa. Sé óskað eftir einhverjum breytingum eins og á lit, letri, lógói, myndum eða öðru, er best að fá allar þær upplýsingar áður en hafist er handa. Athugið að ráðgjafi ásamt vefforritara þurfa að fá aðgang til þess að klára uppsetningu á vefnum.

Forsíða ráðningavefsins skiptist á eftirfarandi hátt: Haus, forsíða, vinstri- og miðjudálkur, mynd, störf í boði og fót (sjá skýringarmynd hér til hægri).


1. Haus

Lógó fyrirtækis eins og það er í dag á ráðningavefnum. Ef óskað er eftir að skipta um lógó vinsamlegast sendið okkur það nýja.

Stærð merkisins getur verið mest 200px á hæð og 600px á breidd en gott er að hafa það ekki stærra en 100px á hæð og 300px á breidd, allt innan þess ramma kemur vel út.  

2. Forsíða fyrirsögn

Fyrirsögnin sem er í dag á ráðningavefnum – (frontpage_headings). Ef fyrirtæki vill breyta þeim texta þá er hægt að gera það með því að breyta textanum í skýringartextum undir Atriðasafn eða hafa samband við ráðgjafa.

3. Vinstri dálkur/Left column

Þetta er textinn sem er núna í miðjudálki á gamla ráðningavefnum  (frontpage_content). Best er að hafa textann stuttan – hér er einnig tilvalið að setja inn hlekki á síður.

4. Mynd hægri dálkur/Picture right column

Fyrirtæki geta valið mynd úr 10 myndum sem sjá má aftast í þessu skjali, eða látið okkur hafa sína eigin mynd. Myndin þarf að vera á jpg formati, lóðrétt (portrait) og best er ef hún er í kringum þessa stærð:189x220px.

5. Miðjudálkur/ Middle column

Þetta er textinn sem er núna hægra megin á gamla ráðningavefnum (right_col_content). Mælum með að sá texti sé skoðaður og til að hann komi sem best út þarf hann að vera stuttur.

6. Störf í boði

Hér koma störfin sem eru í boði og eru núna vinstra megin á gamla ráðningavefnum

7. Fótur/Footer

Sömu upplýsingar og eru núna skráðar í fót á ráðningavef (page_footer)

8. Litur og letur:

Liturinn sem verður notaður er sá sem er ráðandi á ráðningavefnum nema óskað sé eftir öðru. Ef óskað er eftir öðrum lit þarf að senda CSS litakóðann. Letrið verður það sama og er á

ráðningavefnum og sé óskað eftir að breyta því þarf að senda upplýsingar um letrið og láta leturskrá fylgja með í viðhengi.

9. Myndir:

Á vefnum geta verið 5 mismunandi myndir, það er mynd á forsíðu sem talað er um hér að ofan, mynd á Mínum síðum, mynd á innskráningu, mynd á nýskráningu og svo mynd sem er í auglýstum störfum.

Myndirnar sem eru á forsíðu, Mínum síðum, innskráningu og nýskráningu geta verið ein og sama myndin eða sitthvor myndin. Myndirnar fjórar þurfa að vera í hlutföllunum 3:4, til dæmis 750x1000px eða stærri.

Ef í vafa með hvernig best er að laga myndirnar til fyrir vefinn, hafðu samband við ráðgjafa okkar í h3@advania.is og sendu okkur þá þær myndir til okkar sem þú vilt hafa á vefnum og við sjáum til þess að þær komi vel út. 


Meta data

Nú er hægt að bæta svokölluðum lýsigögnum eða meta data í kóða ráðningavefsins í gegnum H3+. Meta data eru upplýsingar sem geta gagnast vöfrum, leitarvélum eða öðrum hugbúnaði sem "skoðar" vefsíðuna. Þessar upplýsingar birtast þannig notendanum aldrei en eru viðloðandi síðuna engu að síður.

Annars vegar er hægt að setja inn Meta description, sem er lýsing á vefnum, og hins vegar Meta tags, sem eru þá orð eða textabútar sem eru lýsandi fyrir vefsíðuna.

  • Meta description:

Meta description er stutt og hnitmiðuð lýsing á ráðningavefnum, ca. 160 stafir. Ef hún er of löng klippir leitarvélin af textanum. Ef enginn texti er settur inn í Meta description, grípur leitarvélin fyrsta textann sem hún finnur á síðunni eða annan texta sem hún telur viðeigandi.

Til að setja inn Meta description er farið í Atriðasafn > Skýringatextar og slegið inn web_outer_descr og textinn settur inn í Texti.


  • Meta tags

Meta tags eru orð eða textabútar sem eru lýsandi fyrir vefsíðuna og gagnast að sama skapi vöfrum, leitarvélum eða öðrum hugbúnaði sem "skoðar" vefsíðuna.

Til að setja inn Meta tags er farið í Atriðasafn > Skýringatextar og slegið inn web_outer_keywords og orðin sett inn í Texti.



Stilling tímamarka / timeout

Eftirfarandi eru leiðbeiningar um það hvernig hægt er að stilla þau tímamörk sem notandi getur verið aðgerðarlaus (idle timeout) á ráðningavef. Þegar tímamörkin sem valin eru, eru liðin hefur notandi tækifæri til að klára og senda inn umsóknina sína en skráist sjálfkrafa út af Mínum síðum þegar umsóknin hefur verið send og þarf þá að skrá sig inn aftur ef hann vill skoða umsóknina sína.

  • Á ytri þjóni (DMZ) þarf að fara í IIS stillingar (Internet Information Services Manager) 
  • Finna þar hvaða application pool er að keyra síðuna 
  • Hægri smella á það appclication pool og velja Advanced Settings þar finnið þið Idle Time-out (minutes) og stillið þar í mínútum tímamörkin sem notandi hefur