H3 teningaskýrslur (OLAP) og aðgangsmál

H3 teningaskýrslur (OLAP) og aðgangsmál

H3 teningarnir eru öflug viðskiptagreindarlausn sem skilar upplýsingum úr flestöllum kerfiseiningum H3 á skjótan og öruggan máta.

H3 teningarnir gera stjórnendum og launasérfræðingum kleift að fá bestu mögulegu yfirsýn til að styðja við upplýstar ákvarðanir, afstemmingar á launakeyrslum og grípa til viðeigandi ráðstafana.

 

Teningarnir bjóða upp á mikla möguleika til að nálgast gögn, skoða upplýsingar frá mismunandi sjónarhornum og hafa eftirlit með kostnaði og réttindum.

Teningarnir veita svör við flóknum fyrirspurnum og gefa stjórnendum góða mynd af stöðunni á hverjum tíma.

Skoða nánar hvernig unnið er í teningum “Vinna í teningum”

 

Launateningur: Hægt að skoða raun launakostnað, launaþróun, veikindakostnað ofl niður á allskonar víddir og mælieiningar.

Laun án launþega: Virkar eins og launateningur að öllu leyti nema ekki hægt að skoða niður á launþega og starfsmenn.

Áætlunarteningur: Hægt er að skoða áætlun, gera samanburð á milli ára og mánaða og fylgjast með framgangi áætlunar á móti rauntölum. Einnig er hægt að draga gögnin niður á alls konar víddir og mælieiningar.

Jafnlaunavottunarteningur: Veitir upplýsingar um heildaruppsetningu jafnlaunakerfis eftir starfaflokkum og persónulegum viðmiðum. Veitir einnig upplýsingar um laun starfsmanna niður á valda launaliði til úttektar fyrir jafnlaunavottun. Hægt er að brjóta gögnin niður eftir ýmsum víddum.

Aðgangssteningur: Veitir upplýsingar um aðgang notenda að H3 lausninni eftir hlutverkum og aðgangsstýringum. Hægt er að brjóta gögnin niður eftir ýmsum víddum.    

Mannauðsteningur: Veitir upplýsingar um mannauðinn, s.s. um starfsmannafjölda og stöðugildi, fræðslutíma og kostnað, starfsaldur, lífaldur og kynjahlutfall. Hægt að brjóta gögnin niður eftir ýmsum víddum.    

Réttindateningur: Hægt er að skoða heildarskuldbindingu á pr réttindaútborganir niður á kostnaðartegundir og greina á mismunandi hátt. Einnig er hægt að brjóta niður eftir alls konar víddum og mælieiningum til að gera okkur kleift að greina hvort möguleg frávik séu eðlileg.

Ofangreindir teningar fylgja með þeim kerfiseiningum sem viðskiptavinir H3 eru með í notkun og eru einfaldir í uppsetningu og notkun.

Hvernig gef ég notanda aðgang að OLAP teningaskýrslum?

Notendum er gefinn aðgangur að OLAP teningaskýrslum í gegnum H3 (Kerfisumsjón > Notendur).

Skref 1:
Skrá þarf stýrikerfisauðkenni notanda (ef kerfið er í HCM hýsingu hjá Advania, þá geta ráðgjafar látið notanda hafa stýrikerfisauðkennið, annars útvegar tölvudeild notanda auðkennið).

Dæmi:

image-20250722-141954.png

 

Skref 2:
Notandinn þarf einnig að vera með hlutverk sem inniheldur viðeigandi einingar (aðgangur fullur):

  • Launateningur - eining 3004

  • Laun án launþega - eining 3014

  • Áætlunarteningur - eining 3000

  • Réttindateningur - eining 3010

  • Jafnlaunateningur - eining 3012

  • Mannauðsteningur - eining 3008

  • Aðgangsteningur - eining 3006

 

Dæmi:

image-20250722-143517.png
image-20250722-143701.png

 

Skref 3:
Auk þess þarf notandinn að vera með viðeigandi aðgangsstýringar og þar er hægt að takmarka aðganginn við ákveðnar deildir og tímabil:

  • Launaáætlun - Áætlanamánuður frá og með (hér ALLT)

  • Launaáætlun - Deildir (hér ALLT)

  • Launaáætlun - Raunmánuður frá og með (hér ALLT)

  • Starfsmenn - Deildir (hér ALLT)

 

image-20250722-143919.png
image-20250722-144110.png


Skref 4:
Þegar notandi fær teningaaðgang í fyrsta sinn og þegar breytingar hafa verið gerðar á teningaaðgangi notanda, þarf að uppfæra teningahlutverk og aðgangsstýringar allra notenda í H3. Þessi vinnsla fer sjálfkrafa af stað einu sinni á sólarhring en einnig er auðvelt að setja hana handvirkt af stað með því að fara í Kerfisumsjón > Vinnslur > OLAP fyrirtækjateningar (eða samstæðuteningar ef við á) > Uppfæra hlutverk og aðgangsstýringar.

Ath. að vinnslan getur tekið nokkrar mínútur.


image-20260507-112504.png