Skip to end of metadata
Go to start of metadata

You are viewing an old version of this page. View the current version.

Compare with Current View Page History

« Previous Version 9 Next »



Uppfærslur eru gefnar út eins oft og þurfa þykir.

Viðskiptavinir fá upp meðfylgjandi glugga í H3+ þegar ný uppfærsla af kerfinu hefur verið gefin út og er það hlutverk kerfisstjóra viðskiptavinar að uppfæra H3 kerfið.


Nýtt uppfærslukerfi í H3+ var gefið út í október 2021


Þeir sem áður höfðu aðgang að uppfærslukerfinu hafa þann aðgang sjálfkrafa í H3+

Nýir notendur: Til að byrja að nota nýja uppfærslukerfið þarf að setja eininguna TMFW-Patch á hlutverk eða setja hlutverkið Uppfærslukerfi - H3+ á notandann.

Undir Kerfisumsjón er þá sýnilegur hnappurinn Uppfærslur og undir honum má einnig nálgast uppfærslulýsingar.

Þegar smellt er á hnappinn birtast þær uppfærslur sem á eftir að taka inn.

Þá er einfaldlega hakað við viðkomandi útgáfu og smellt á Uppfæra.

Hægt er að taka inn fleiri en eina uppfærslu í einu en þær þarf að taka inn í tímaröð, þ.e. elstu útgáfurnar fyrst.

Hægt er að fylgjast með framvindu uppfærslunnar í athugasemdum og í lokin birtist staðfesting á því að uppfærslunni sé lokið.

Athugið að til að fá inn nýjungar og lagfæringar þarf að endurræsa kerfið.

Ef upp koma vandkvæði þá vinsamlegast hafið samband við ráðgjafa í h3@advania.is

  • No labels