Skip to end of metadata
Go to start of metadata

You are viewing an old version of this page. View the current version.

Compare with Current View Page History

« Previous Version 3 Next »

Ný vinnsla sem býður upp á að uppfæra eftirfarandi starfsmannagildi samkvæmt tímavídd eftir að staðfestir hafa verið fastir liðir, innlesnir og skráðir launaliðir.

Eftirfarandi gildi eiga að uppfærast:

  • Launatafla

  • Launaflokkur

  • Þrep

  • Einingarverð

  • Deild

  • Starfsheiti

  • Verk

  • Verkþáttur

  • Starfsstétt

  • Deilitala/Orlofsstímar

  • Orlofsprósenta DV

  • Orlofsprósent ÖN

  • Reiknað orlof

Ef það hefur verið stofnuð ný tímavíddarfærsla sem hefst ekki í upphafi mánaðar og á að skiptast upp þá sér þessi vinnsla ekki um það, þetta er vinnsla sem uppfærir gildi skv breytingum í tímavídd, skiptir ekki upp færslunum, nema þá eyða skráningu og staðfesta fasta liði. Hafa skal í huga ef það hefur verið gerð breyting sem tekur gildi á miðju tímabili og aðgerðin keyrð þá breytast öll gildi sbr deild, starfsheiti, verk, verkþáttur, starfsstétt en laun breytast ekki

Vinnslan er undir Skrá tíma og laun – Aðgerðir – Uppfæra samkvæmt tímavídd

Hægt er að keyra vinnsluna á eftirfarandi:

  • Einstaka starfsmann, valið er starfsmann frá og með

  • Deild frá og með

  • Verk frá og með

Dæmi um mál sem geta komið upp:

Búið er að staðfesta fasta liði og lesa inn skráningar úr viðverukerfi, úttektir, fyrirframgreiðslur oþh.

  • Mannauðsdeild sendir upplýsingar um breytingar á starfsmanni sem á að taka gildi í strax 10.6.2022 búið er að staðfesta fasta liði og lesa inn gögn á starfsmenn í útborgun.

Gerð er breyting frá 10.6.2022 að starfsmaður færist til á aðra deild og í annað starfsheiti.

Uppfæra þarf launaskráningar í takt við þessar breytingar svo skil til bókhalds og laun samþykkjast á rétta deild. Þessi starfsmaður var með breytingu frá 10.6.2022 og var með uppskiptingu í skrá tíma og laun.

  • Stjórnandi gleymdi að senda inn breytingar á starfsmanni um breytingu á launaflokk og þrepi.

Farið er í það að breyta í opinni tímavídd þessum gildum og vill stjórnandi að laun starfsmanns reiknis miða við nýju gildin.

  • Stjórnandi gleymdi að senda inn viðbótarupplýsingar um nýjan starfsmann, hann samdi um að fá orlofs% 11,59% í stað 10,17% og var rangt skráður og á að vera á þrep 3 í stað 2.

Það þarf að uppfæra þessar breytingar í skrá tíma og laun í takt við þessar breyitingar.

  • Breyting kom seint og á að taka gildi frá 20.6.2022 breyting á Verki, launaflokk og þrepi, þetta felur í sér að þetta þarfnast uppskiptingar á launafærslum og því ætti að koma athugasemd þess efnis, því þetta krefst þess að notandi þarf að eyða öllu úr skráningu og staðfesta fasta liði aftur og skrá aðrar afleiddar færslur.

Í Athugasemdir koma svo upplýsingar hvaða starfsmanni var breytt, hverju var breytt og í hvað og á hvaða launlið.

  • No labels