Bakvörður heldur utan um veikindi starfsmanna (ástæðan VE) og veikindi barna starfsmanna (ástæðan VB).
Einnig er hægt að halda utan um veikindarétt starfsmanna og rétt vegna veikinda barna.
Útreikningur á veikindarétti
Í Bakverði eru upp settir samningar vegna veikindaréttar fyrir eftirfarandi samningsaðila:
Samningarnir kveða á um fjölda veikindadaga sem starfsmaður hefur áunnið sér síðustu 12 mánuði - út frá fjölda mánaða sem starfsmaður hefur unnið hjá fyrirtækinu.
ATHUGIÐ:
Talning á veikindarétti er gerð frá þeim tímapunkti sem tekin er út staða veikindaréttar á starfsmanni - þ.e. frá deginum í dag og 12 mánuði aftur í tímann.
Veikindaréttur er talinn samfellt aftur jafnvel þótt starfsmaður láti af störfum og komi aftur til starfa.
Veikindaréttur starfsmanns tekur mið af því starfshlutfalli sem starfsmaður er í á þeim tímapunkti sem veikindaréttur er talinn - fjöldi veikindastunda sem starfsmaður hefur skráða skalast ekki til hafi starfsmaður minnkað eða aukið starfshlutfall sitt frá þeim tíma sem veikindaskráning átti sér stað.
Veikindaréttur er ekki talinn ef: Ráðningarform starfsmanns er Ekki byrjaður, Verktaki eða Launalaust leyfi
Veikindaréttur barna er óháður veikindaréttarsamningi. Hann reiknast skv.: fyrstu sex mánuði í starfi: tveir dagar fyrir hvern unninn mánuð, eftir 6 mánaða starfi: 12 dagar á hverju 12 mánaða tímabili - hámarks réttur vegna veikinda barna er 12 dagar. Veikindaréttur vegna barna reiknast alltaf í heilum dögum, starfsmaður í hlutastarfi fær því jafn marga en styttri daga vegna veikinda barna en starfsmaður í fullu starfi.
Setja veikindaréttar samning á starfsmann
Til að virkja veikindarétt starfsmanns er viðeigandi samningur valinn í starfsferli starfsmanns:
Hvernig sjá stórnendur og/eða starfsmenn veikindarétt starfsmanns?
Þegar valin er ástæðan VE eða VB birtist upplýsingareitur sem segir til um stöðu veikindaréttar.
Staða veikindaréttar hefur engin áhrif á hvort hægt er að skrá á ástæðuna, notandi gæti hins vegar viljað gera skráningu á aðra ástæðu s.s. Launalaus veikindi ef starfsmaður á ekki veikindarétt sem hann getur nýtt.
Skýrslur um veikindi og veikindarétt
í Umsjón>Skýrslur eru tvær skýrslur sem veita yfirsýn um veikindarétt:
Veikindi og veikindaréttur
Staða veikinda barna
Kostnaður vegna veikinda
Ekki er haldið utan um kostnað vegna veikinda í Bakverði. Til að halda utan um slíkar upplýsingar þarf að lesa skráningar á ástæður VE og VB út úr Bakverði og inn í launakerfi. Til dæmis er hægt að koma upp launavinnslu til að lesa skráningar vegna veikinda inn í launakerfi.