Við veljum inn dálka í þessa skjámynd sem við ætlum að nota í áætlun og hvernig þeir reiknast.
1. Við byrjum á því að velja þá áætlanadálka sem við ætlum að nota.
2. Og skilgreinum hvernig við reiknum hvern áætlunardálk fyrir sig, hér er nauðsynlegt að vita hvernig þetta reiknast í launakerfinu til þess að samanburður á áætlun og raun sé raunhæfur.
- Línurnar í stillinum hér að neðan eru áætlanadálkarnir sem eru í efri töflunni.
- Lóðréttu dálkarnir eru áætlanadálkar sem reiknast sem hlutfall af þeim sem eru í línunum.
- Við höfum til dæmis 2 dálka fyrir orlof,
- "Orlof" - hér setjum við hak í allar línur sem reikna á orlof á þegar starfmsmaður í áætlun er með "Öllu" í Stilling - Orlofsútreikningur, á við um starfsmenn sem ekki safna upp dögum í launakerfinu.
- "Orlof(Dv safnað rest reiknað) setjum inn hak á sömu línur og að ofan greinir nema á Mánaðarlaun og aðra dagvinnuliði, á við um starfsmenn sem safna upp dögum.
Í upphafi áætlunargerðar hvert ár er þessi tafla yfirfarin, ekkert gert ef á að áætla á sama hátt og áður en ef á að fjölga eða fækka dálkum er búin til ný færsla með því að smella á Insert í "Heiti". Sem sagt engu er breytt hér heldur stofnuð ný færsla.