Viðbótamótframlag í almenna lífeyrissjóði 5,85% sem skila þarf sérstaklega og auðkenna sem B sjóði.
Athugið !
Smellið á myndirnar til að sjá þær stærri.
1. Stofna þarf sérstakan launalið sem er eins og 9020 og skilagreinategund á að vera B.Vinnudeilusjóður.
(Athugið að þetta er einungis til að B merking komi á með lífeyrissjóðsnúmeri í rafrænum skilum, svo ekki kemur að sök þó þessi skilagreinategund heiti Vinnudeilusjóður)
2. Stofna þarf nýjan lífeyrissjóð fyrir nýja launaliðinn og ekki setja neitt inn í „Skilagrein send til“ því það á að halda þessu mótframlagi alveg aðskildu.
3. Setja nýja sjóðinn inn á þá starfsmenn sem uppfylla skilyrði samkv. kjarasamningunum, þeir verða því skilgreindir með 2 almenna lífeyrissjóði en aðeins annar merktur sem aðallífeyrissjóður.
4. Gott er að skoða færslur í reikningi eftir að búið er að setja sjóðinn á starfsmann, skrá laun og reikna.
5. Lífeyrissjóðirnir koma í sitthvortu lagi í skilagreinamyndina.