Ef ekki hentar að samþykkja launin eftir deildum eru settir upp samþykktarhópar og "Samþykktaraðili" settur á hópana.
Til að sjá hvaða starfmenn eru í hvaða hóp er farið í Yfirlit samþykktaraðila, þar má sjá fremst hver samþykktarhópurinn er, nafn starfsmanns og aðrar upplýsingar og nafn samþykktaraðila.
Þegar kerfið er stillt á samþykktarhópa kemur sjálfkrafa hópurinn OSG eða Óskilgreindur hópur á alla starfsmenn. Við nýskráningu starfsmann eru þeir merktir "Ekki í hóp"
Tengja Tengja marga starfsmenn í sama samþykktarhóp:
- Laun / Starfsmenn / Listi
- Ctrl haldið niðri og smellt á þá starfsmenn sem á að setja í hópinn
- Hægrismellt - Setja í samþykktarhóp, þá kemur upp ferill hægra megin á síðu þar sem viðeigandi hópur er settur inn
- Framkvæma
Info | ||||
---|---|---|---|---|
| ||||
Hafi útborganir þegar verið samþykktar eftir deildarfyrirkomulaginu dettur sú samþykkt út þegar stillt er á hópa. |
Hjá fyrirtækjasamstæðum er hægt að láta samþykkja eftir deildum í einu fyrirtæki og hópum í öðru. Hafið samband við ráðgjafa h3@advania.is til að leita aðstoðar við þetta. |