Ef ekki hentar að samþykkja launin eftir deildum eru settir upp samþykktarhópar og "Samþykktaraðili" settur á hópana.
Til að sjá hvaða starfmenn eru í hvaða hóp er farið í Yfirlit samþykktaraðila, þar má sjá fremst hver samþykktarhópurinn er, nafn starfsmanns og aðrar upplýsingar og nafn samþykktaraðila.
Þegar kerfið er stillt á samþykktarhópa kemur sjálfkrafa hópurinn OSG eða Óskilgreindur hópur á alla starfsmenn. Við nýskráningu starfsmann eru þeir merktir "Ekki í hóp"
Tengja marga starfsmenn í sama samþykktarhóp:
- Laun / Starfsmenn / Listi
- Ctrl haldið niðri og smellt á þá starfsmenn sem á að setja í hópinn
- Hægrismellt - Setja í samþykktarhóp, þá kemur upp ferill hægra megin á síðu þar sem viðeigandi hópur er settur inn
- Framkvæma