Versions Compared

Key

  • This line was added.
  • This line was removed.
  • Formatting was changed.

Almennir lífeyrissjóðir koma uppsettir með H3 og eru allir sjóðirnir skráðir óvirkir. Það þarf því að byrja á að virkja alla almennu sjóðina sem eiga að vera í notkun hjá fyrirtækinu, velja Virkur í Staða. Farið í Stofn - Lífeyrissjóðir og smellið á þá sjóði sem á að yfirfara og farið yfir skráðar upplýsingarog jafnframt að yfirfara þær upplýsingar sem eru skráðar á sjóðinn. Í stofnupplýsingum fyrir lífeyrissjóði er gluggi sem heitir Tengdir starfsmenn. Ef það eru engir tengdir starfsmenn og búið er að skrá alla starfsmenn inn í kerfið þarf ekki að virkja þann sjóð og hægt er að smella á næsta sjóð.

Yfirfara þarf sérstaklega vel eftirtalda reiti í stofnupplýsingum lífeyrissjóðs, einnig er gott að yfirfara bankaupplýsingar sjóðanna. Farið í Stofn - Lífeyrissjóðir og tvísmellt á viðkomandi sjóð

Staða 

Breyta stöðu í Virkur í þeim sjóðum sem á að nota 

Greiðslumáti 

Val um Textaskrá SI080 eða Rafræn bankasending ef sent er beint í banka 

Til greiðslu 

Sjálfgefið er Síðasti dagur mán. Hægt að breyta dagsetningu ef önnur er notuð. 

Image Modified

Skilgreina þarf svo reiknireglur lífeyrissjóðanna. Búið er að setja upp reiknireglur fyrir flesta almenna sjóði (fyrir utan LSR og Brú lífeyrissjóð) en það er alltaf á ábyrgð launagreiðanda að yfirfara þessar upplýsingar fyrir alla sjóði sem á að nota og passa að allar reiknireglur séu réttar. 

...