Versions Compared

Key

  • This line was added.
  • This line was removed.
  • Formatting was changed.


Rafræn skil á launaseðil í heimabanka starfsmanna er það sem flestir launagreiðendur og launþegar kjósa.

Það sem þarf að gera áður en seðlarnir eru sendir rafrænt í fyrsta skipti má sjá hér.

 

Ef seðillinn er prentaður á pappír prentast hann út með allri uppsetningu og því þarf ekki að nota forprentaða seðla.

Notendur geta haft nokkur áhrif á það hvernig seðillinn lítur út, í  Stofn / Stillir / HLaun-Launaseðill eru þau atriði sem hægt er að breyta, sjá mynd hér til hliðar.

Í uppfletti má sjá þá valmöguleika sem eru í boði.

  • Fyrirsögn - ef þetta er tómt kemur LAUNASEÐILL
  • Haus á launaseðli -  Vinstri eða Hægri, segir til um hvoru megin fyrirsögnin kemur
  • Röðunarnr.texti - Ef þú vilt t.d. birta á seðlinum einhverjar upplýsingar sem ekki er verið að halda utanum í launkerfinu almennt, eins og t.d. starfsnúmer úr tímaskráningarkerfi getur þú notað þennan reit, að því gefnu að þú sért búin að setja númerið í reitinn "Röðunarnúmer" í starfsmannamyndinni og setja Já í Stillinn hér til hliðar í "Sýna röðunarnúmer"

Svona birtist þetta þá á launaseðlinum.

  • Skýringartexti - kemur neðst í hægra horni seðilsins



Note

Til að vista breytingar í ferlinum hér til hliðar er smellt á "Skrá gildi"


   


Til að prenta seðilinn er farið í Úttak / Launaseðlar / Prenta.  Ef einhver starfsmannaskjámynd er opin kemur kennitala þess aðila inn í prentgluggann, annars koma frá til skilyrði á Launamanninn tómar.  Ef velja á að prenta alla seðla eða skoða á skjá óháð skilaaðgerð í Launamenn er valið "Allir" í Tegund launaseðils. 

Farið er á milli launaseðla með PageUp og PageDown eða smellt á örvatakkana efst í myndinni. Þar er fleiri möguleikar t.d til að senda seðla í tölvupósti.  Athugið bara að það fara allir seðlar á sama netgang og á því bara við ef senda á yfirmanni alla seðlana, ef senda á til launamanna þarf að velja í upphafi að prenta bara út einn seðil.

Lengst hægra megin er síðan reitur til að leita í seðlunum, ef við erum komin með marga seðla á skjáinn og viljum skoða sérstakan launamann skráum við nafnið í leitargluggann og smellum á möppuna hægra megin. 




Image RemovedImage Added