...
Nýtt uppfærslukerfi í H3+ var gefið út í október 2021
Nýir notendur: Til að byrja að nota nýja uppfærslukerfið þarf að setja eininguna TMFW-Patch á hlutverk eða setja hlutverkið Uppfærslukerfi - H3+ á notandann. Undir Kerfisumsjón er þá sýnilegur hnappurinn Uppfærslur og undir honum má einnig nálgast uppfærslulýsingar. Þegar smellt er á hnappinn birtast þær uppfærslur sem á eftir að taka inn. Þá er einfaldlega hakað við viðkomandi útgáfu og smellt á Uppfæra. Hægt er að taka inn fleiri en eina uppfærslu í einu en þær þarf að taka inn í tímaröð, þ.e. elstu útgáfurnar fyrst. Hægt er að fylgjast með framvindu uppfærslunnar í athugasemdum og í lokin birtist staðfesting á því að uppfærslunni sé lokið. Athugið að til að fá inn nýjungar og lagfæringar þarf að endurræsa kerfið. Ef upp koma vandkvæði þá vinsamlegast hafið samband við ráðgjafa í h3@advania.is |