...
Algengustu stjórnendaskýrslur eru:
Vinnuyfirlit: Hægt er að prenta út yfirlit yfir tímaskráningar starfsmanna undir Aðgerðir>Prenta vinnuyfirlit - einnig er hægt að senda vinnuyfirlitið á netfang starfsmanna
Fjarveruóskir starfsmanna: Sýnir stöðu á fjarveruóskum starfsmanna
Flytja færslur í Excel: Setur allar tímaskráningar á völdu tímabili í excelskrá
Færslur á ástæðu: Sýnir allar tímaskráningar á valda ástæðu
Færslur á verknúmer: Sýnir allar tímaskráningar á valið verk
Staða tímabanka: Sýnir stöðu valins tímabanka, s.s. orlofs, hvíldartíma, styttingu vinnuvikunnar eða vetrarfrís fyrir hvern starfsmann
Starfsaldur: Sýnir lista yfir starfsfólk og starfsaldur þess í árum og mánuðum.
Summuskýrsla: Sýnir tímaskráningar á valda ástæðu
Tímar á verki: Sýnir samanlagðan tímafjölda skráða á verk, hægt t.d. að brjóta sundur eftir verkum
Tímaskýrsla deildar: Sýnir tímaskráningar allra starfsmanna í deild. Ath: ef starfsmaður er færður á milli deilda færast skráningarnar með starfsmanninum.
Staðfestingarskýrsla: Sýnir allar skráningar starfsmanna sem viðkomandi stjórnandi ætti að staðfesta tíma fyrir.
Úttektir í mötuneyti: Sýnir úttektir starfsmanna í mötuneyti (ef mötuneytiskerfið Matráður er notað)
Akstursskráningar - Samtölur: sýnir samtölur tímaskráninga í akstursbók
...