Starfsaldur


Reiknaður starfsaldur


Starfsaldur reiknast í hverri útborgun fyrir sig eins og hann er skilgreindur í Stofn/Reiknihópar.  Almennt er reiknaður 1. mánuður í starfsaldur ef starfsmaður skilar 1. mánuði í vinnu óháð starfshlutfalli þó að lágmarki í 20%. 


Þessu hlutfalli má breyta ef reglurnar eru aðrar í þeim kjarasamningum sem verið er að greiða laun eftir.




Áður áunninn starfsaldur

Í mörgum tilfellum ber launagreiðanda að meta starfsaldur annars staðar frá, sá starfsaldur getur haft áhrif á t.d.veikindarétt eða röðun í launatöflu.


Til að halda utan um mismunandi starfsaldur er farið í Stofn/Starfsmenn/Uppruni viðbótarstarfsaldurs og sett inn færsla fyrir hverja tegund fyrir sig sem á að meta


Í Stofn/Starfsmenn/Viðbótarstarfsaldur er þetta skráð á starfsmenn.  Hakað er við þau atriði sem eiga við hverju sinni.

Ef hakað er í:

  • Til starfsaldurs: bætist við starfsaldur í fyrirspurnum og skýrslum s.s. á launaseðli
  • Til launa: er viðbótarstarfsaldur notaður þegar gerðar eru launatöfluhækkanir vegna starfsaldurs
  • Til orlofs: er viðbótarstarfsaldurinn notaður þegar gerðar eru orlofshækkanir í launatöflum
  • Til veikinda: viðbótarstarfsaldur sést í fyrirspurnum þar sem veikindi koma fram - einnig notað til samþættinga s.s. við Vinnustund
  • Til hlunninda: viðbótarstarfsaldur er skráður til upplýsinga og sést ekki annars staðar
  • Til gjafaviðbótarstarfsaldur er skráður til upplýsinga og sést ekki annars staðar

Í dálkinn Athugasemdir er hægt að skrá upplýsingar sem sjást ekki annars staðar. 

Fyrirspurnir:

  1. Til að sjá starfsaldur á einstaka starfsmanni er farið í Stofn/Starfsmenn eða í Laun/Skrá tíma og laun og ferillinn kallaður fram með Crtl+H
  2. Til að sjá starfsaldur allra starfsmanna ferðu í Fyrirspurnir/Söfnun og réttindi og tekur út einhverja af þeim 3 fyrirspurnum sem eru í boði. Greiningar – Fyrirspurnir – Söfnun og réttindi 
    • 01. Reiknaður starfsaldur (ár – mánuðir)
    • 03. Heildarstarfsaldur (Ár – mánuðir)
    • 07. Starfsaldur eftir tegundum (mánuðir)

Athuga skal að upplýsingar í ofangreindum skýrslum, fyrirspurnum sýna ávallt reiknaðan starfsaldur og áður áunninn starfsaldur (viðbótarstarfsaldur).